www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Just do it!
Mánudagur, 15. febrúar 2010

Ég beilaði á fjallgöngu í gær. Fórum í bollukaffi og á eftir var afslöppun - sem mér veitti ekkert af.

Á verðlaunaafhendingu hjá SVEF á föstudaginn hitti ég mann sem er bloggari og búinn að vera lengi. Hann sagði mér að frá því hrunið varð hefur hann ekki fundið sig á bloggi síðan - jú, hann setur inn eina og eina færslu, en ekkert miðað við hvernig þetta var. Hann sagði m.a. að þegar fleiri hundruð nýir hrun-bloggarar komu fram var eins og þeir hefðu kaffært þessum "gömlu". Og ég er sammála honum, þó mér finnist líka ágætt að fólk tjái sig um það sem er að gerast í hrunmálum.

Það er samt ekki nóg að skrifa um hlutina, það þarf að framkvæma líka. Í gærkvöldi rifjaði ég upp framkvæmdarleysislúppuna sem ég var föst í einu sinni. Hún lýsir sér svona:

Anna fær hugmynd, hugsar: ég ætti að gera "þetta" -> hugsa meira -> þarf að gera þetta -> hvernig ætla ég að gera það -> samt.. get ég þetta? -> veit ekki alveg -> kannski verður híað á mig -> kann ekki -> o.s.frv.

Þessi lúppa verður til þess að ekkert gerist - ever. Ég er búin að skipta framkvæmdarleysislúppunni út fyrir "just do it" lúppunna. Hún er svona:

Anna fær hugmynd, hugsar: ég þarf að gera "þetta" -> Anna gerir þetta -> Anna metur útkomuna

Það borgar sig reyndar ekki að taka þetta upp nema maður þekki sjálfan sig ágætlega og fái lítið af arfa heimskum hugmyndum og þar sem ég þekki mig ágætlega og fæ orðið afar sjaldan arfa heimskar hugmyndir, þá þrælvirkar þetta.

Það er liberating að "gera" í staðinn fyrir að loka sjálfan sig inni í hausnum og hugsa allt of mikið - því þá gerir maður aldrei neitt. Auðvitað geri ég stundum hluti sem mistakast eða klúðrast eða hefðu mátt fara miklu betur, en það er mjög sjaldan svo mikið disaster að ég sjái eftir að hafa gert það. Í lífinu gildir það sem þú gerir, ekki það sem þú hugsar um að gera. Alveg sama hvað þú eyðir miklum tíma og orku í að hugsa um það.

Það er nefnilega annað, ef maður gerir eitthvað og það reynist misheppnað, þá getur maður oftast bætt það upp - ef maður vill gera það.

Annars er ég í svo góðu skapi akkúrat núna, var að klára að borga síðasta stóra reikninginn frá tannlækninum og styttist í að það mál sé alveg afgreitt. Svo hringdi aðkomumaðurinn seinnipartinn og gladdi mig óvænt þegar hann spurði hvort hann ætti ekki að sjá um matinn í kvöld.

Lífið getur verið svo yndislegt stundum, hafi þið tekið eftir því?


| anna | 17:02 |
comments

I hear you, sista! Lífið er yndislegt og þú líkasmile

Nr. 1 | posted by: Kristín | 16.02.2010 | 7:24:00 | [+] |

Sömuleiðis Kristín happy

Nr. 2 | posted by: anna | 16.02.2010 | 12:24:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web