www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
It's Groundhog day!
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010

vlcsnap-954638.gif

Ég var að klára 100 froskastökk. Doddi liggur hér veikur í sófanum og taldi veikum rómi niður síðustu tíu. Það þýðir að ég er búin að taka, allt í allt, 5050 froskastökk frá því áskorunin byrjaði fyrir hundrað dögum síðan, þann 26. október á síðasta ári.

Ég fékk það sem mig langaði mest að verðlauna mig með. Litla járnskífu, 3 mm þykka, sem passar í lófann á mér og búið er að grafa í:

2. febrúar 2010
5050

IMG_6121-1.jpg

Það var vinnufélagi minn sem bjó þetta til og ég er svo þakklát, þetta er akkúrat það sem ég vildi.

Mig langaði nefnilega mest í eitthvað sem minnti mig á a) að ég GAT klárað þetta, b) hvað mér líður vel þegar ég hreyfi á mig á hverjum degi og c) ÉG FRICKING RÚÚÚÚÚÚÚLAAAAAAAAAA!

Ég er komin niður í 61 kg og fullt af cm fátækari eftir þessa áskorun en það sem er mest um vert er hvað mér líður ótrúlega vel þegar ég hreyfi mig daglega og hvað þetta hefur víðtæk áhrif, til dæmis á matarræði og svefn.

En núna ætla ég að fara í langt, heitt og verulega verðskuldað bað.

BOOJAH!!


| anna | 10:48 | send to facebook |
comments

Elsku Anna mín!
Þú átt risastórt hrós skilið því ég veit manna best hvernig þessi áskorun er. Meðal Crossfittara er þessi æfing, þe. burpees kallað verkfæri djöfulsins og ekki að ósekju.
En hvernig í ósköpunum gastu efast um að þú gætir þetta? Aldrei var ég í nokkrum vafa um það þegar ég skoraði á þig.

Nr. 1 | posted by: Edda | 2.02.2010 | 11:09:28 | [+] |

Frábært! Til hamingju!

Nr. 2 | posted by: Harpa J | 2.02.2010 | 11:32:36 | [+] |

Djöfull er þetta flott hjá þér Anna!
Til hamingju!

Efaðist ekki um að þú kláraðir þetta.

Nr. 3 | posted by: rato | 2.02.2010 | 11:36:41 | [+] |

Þetta er nokkuð glæsilegur árangur.

Vonandi varð ekki mikið tjón á innanstokksmunum í þessum hamförum.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 2.02.2010 | 11:50:40 | [+] |

Takk, takk, takk!! 0

Nei Edda en ég efaðist sjálf, meina ég gat ekki gert eina armbeygju á tánum þegar ég byrjaði. Ég var að gera eitt hundrað í morgun! Sæll!

Það varð ekkert tjón á innanstokksmunum í þessum hamförum, enda fer nú ekki svo mikið fyrir mér wink

Yippee-ki-yay!

Nr. 5 | posted by: anna | 2.02.2010 | 12:30:00 | [+] |

Þú ert flottust! Á ég sem sagt að láta tattóvera 5050 á mig 12. mars?

Nr. 6 | posted by: Kristín | 2.02.2010 | 13:06:01 | [+] |

Játs! Laaaang flottust marr! hahaha

Tattú segirðu... hvar?

Nah, ég myndi nú ekki tattóvera þetta á mig - EN - ef ég blikka manninn sem bjó til verðlauna-stál-peninginn minn þá gæti hann verið fáanlegur til að búa til annan wink

Þvílíkir snillingar sem ég er að vinna með. Ég sá að þú fékkst í axlirnar. Ég fékk í vinstri öxlina fyrir viku síðan ógeðslegan verk en ég gerði þetta bara hægar og vandaði mig meira, verkurinn fór á þremur dögum.

12. mars verður æðislegur dagur. Ef Doddi væri ekki veikur myndi ég fara með krakkana út að borða í kvöld til að halda uppá þetta!

Nr. 7 | posted by: anna | 2.02.2010 | 13:12:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web