www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Houseguest
Föstudagur, 12. febrúar 2010

Um daginn bauð ég vini mínum að búa hjá mér í smá tíma þangað til hann fær íbúðina sem hann var að kaupa afhenta. Hann er búinn að koma sér fyrir í herberginu og búin að bjóðast tíu sinnum til að taka sófann. Hann trúir ekki að ég vilji frekar vera í sófanum en rúminu þó ég sé búin að útskýra fyrir honum þetta með að ég sofi betur ef mér finnst eins og einhver sé við hliðiná mér og sófabakið gefur mér það effect. Hann leit ekki út fyrir að vera sannfærður.

Ég verð á fjöllum mest alla helgina og hann þarf að vinna eitthvað svo við eigum ekki eftir að vera mikið fyrir hvoru öðru. Ekki að hann sé neitt fyrir, mér finnst notalegt að hafa einhvern fullorðinn til að tala við. Einkasonurinn er reyndar búin að einoka hann s.l. klukkutíma, sem mér finnst soldið sætt, og í þessum töluðu orðum er hann að sýna gestinum trailerinn úr myndinni "The Hitchhiker's Guide to the Galaxy" . Heyrist planið vera að horfa á hana annað kvöld - sem þýðir að ég þarf að kaupa poppmaís.

Ég er reyndar líka búin að stinga uppá því að hann skelli sér með mér á Esjuna á sunnudaginn. Hann ætlar að hugsa málið.


| anna | 23:29 |
comments

Og þú sefur ein af því...?

Síðast þegar ég vissi áttirðu tvíbreitt rúm. Glætan að ég myndi sofa á sófanum til að hafa þá gervitilfinningu að einhver héldi utan um mig ef lifandi faðmlag væri liggjandi í rúminu mínu.

Nr. 1 | posted by: Eva | 13.02.2010 | 11:49:08 | [+] |

Hann bauð mér það reyndar líka..

Nr. 2 | posted by: anna | 13.02.2010 | 14:38:24 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web