Laugardagur, 06. febrúar 2010
Æðisleg ganga í dag í góðum félagsskap - og ég gleymdi ekki myndavélinni í þetta skipti..





Við ákváðum að fara aðeins lengra en upp að steini, þó við færum ekki alveg uppá topp. Það er svo svakalega hált þarna í steinunum að það borgaði sig ekki í þetta skipti.

Þarna settumst við niður og mér var boðið uppá heitt súkkulaði og flatkökur með hangjikjöti í æðislegu veðri og skjóli.


Ljósamaðurinn þarna uppi ávað að lýsa upp næsta fell sem ég fer á, þar sem ég fer þangað á þriðjudagskvöldið og mun sennilega þurfa að vera með höfuðljós. Sætt af honum.
Síðast fórum við upp í gegnum Einarsmýri, en í þetta skipti fórum við upp hefðbundnu leiðina en niður Einarsmýri.