Mánudagur, 08. febrúar 2010
Hvað heyrði ég þetta oft þegar ég var krakki?
Ég veit það ekki, en það var ekki sjaldan. Ég lærði að vera góð og prúð stúlka og lita á "réttu" svæðin, en svo varð ég eldri og komst að því að það er bara svo hundleiðnlegt líf að gera ekkert nema því aðeins að meðaljóninn gefi samþykki sitt að ég hætti því og fór að gera hlutina eins og mér finnst best að gera þá. Eins og rithöfundurinn Eva Hauksdóttir.
Eva var að skrifa undir útgáfusamning í morgun hjá Skruddu og um miðjan mars verður gefin út fyrsta bókin hennar, sem heitir einmitt "Ekki lita út fyrir", sem mætti flokka sem heimspeki fyrir almenning. Í bókinni potar Eva í hluti sem meðaljóninum, aka pappakössum, finnst ekkert rosalega gott að láta pota mikið í, eins og henni einni er lagið. Hún tekur líka fyrir fórnarlambsfemínisma og notar sýndarraunsæi þar sem hún blandar saman raunveruleika og skáldskap.
Þeir sem hafa lesið bloggið hennar Evu vita hversu fær höfundur hún er og þetta er fyrsta verkið sem hún gefur út sem hefur upphaf, miðju og endi - ólíkt blogginu sem er meira fljótandi miðill - þó ég voni svo sannarlega að þessi bók sé bara byrjunin.

Bókin er prýdd ljósmyndum af Evu sem teknar voru af Ingólfi Júlíussyni, ljósmyndara.
Mikið ofboðslega væri þetta boring heimur ef engin litaði út fyrir annað slagið.
Til hamingju með bókina Eva!