www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Unfuckingbelievable
Þriðjudagur, 19. janúar 2010

Ef ég var sveitt í gær er það ekkert miðað við hvað ég er sveitt núna, enda var ég að klára 86 froskastökk í einni lotu. Ég ætlaði að fara uppí fimmtíu og taka pásu, en þegar ég var komin þangað fann ég að ég átti það mikið eftir að ég ákvað að klára þetta bara.

Ég finn ekkert smá fyrir vöðvunum í handleggjunum eftir þetta og ég hef aldrei á ævinni svitnað svona mikið.

Já, ég er með vitni.

Ég er farin að velta fyrir mér hvað ég á að gera til að verðlauna mig þegar þessu er lokið, en mér dettur ekkert í hug. Eru þið með einhverjar hugmyndir?


| anna | 17:39 |
comments

Halda áfram upp í 200?

Nr. 1 | posted by: HT | 19.01.2010 | 17:55:02 | [+] |

Það eru ekki verðlaun finnst mér. Ég er eiginlega búin að ákveða að annaðhvort halda mér í 100 og bæta við tveimur æfingum eða minnka niður í 50 og taka inn þrjár aðrar æfingar, 100 á 100 dögum.

Nr. 2 | posted by: anna | 19.01.2010 | 17:58:38 | [+] |

Gætir búið þér til eitthvað svakalega gómsætt skyrboost, td, með banönum eða einhverju öðru gúmmulaði.

Svo gætiru náttúrulega verið ennþá séðari og verðlaunað þig með því að horfa á einhverja mynd sem þú hefur ekki gefið þér tima til að horfa á ennþá eða lengi wink

Nr. 3 | posted by: Kjartan Þór | 19.01.2010 | 18:04:05 | [+] |

Ég er búin að velta þessu þónokkuð fyrir mér og mig langar eiginlega í eitthvað sem minnir mig á hvað þetta er að gera mér gott, nánast eins og pening sem alkarnir fá eða eitthvað þannig.

Eitthvað lítið sem passar í lófann á mér. Hljómar það insane?

Mig langar ekki í sveittan hamborgara í verðlaun eða föt eða skartgripi eða neitt þannig. Það hefur enga merkingu.

Nr. 4 | posted by: anna | 19.01.2010 | 18:10:33 | [+] |

Merrell Cahmeleon - flottir gönguskór til þess að komast í frekara form, og slá jafnvel mjúkum Champers við. Þeir kosta kannski hálfan Skoda í dag?

Nr. 5 | posted by: Outlaw | 19.01.2010 | 19:05:41 | [+] |

h-in á fleygi ferð í dag, eitt á röngum stað, öðru of aukið.

h fyrir því

Nr. 6 | posted by: Outlaw | 19.01.2010 | 19:07:20 | [+] |

Það er lúxus sem ég hef ekki efni á í dag smile

Nr. 7 | posted by: anna | 19.01.2010 | 19:07:29 | [+] |

Þetta er allt of erfið spurning.

OST?

Nr. 8 | posted by: Outlaw | 19.01.2010 | 20:39:19 | [+] |

OST?

Nr. 9 | posted by: anna | 19.01.2010 | 21:54:26 | [+] |

Þú ert unfuckingbelievable! Ég hneig mig fyrir þér. Ég held að OST hljóti að þýða (lesa börnin þín nokkuð síðuna?) ofsa stóran tilla. En mér gæti skjátlast. Og ég er ódrukkin.

Nr. 10 | posted by: Kristín | 19.01.2010 | 23:33:35 | [+] |

Þetta var mental slip.

Glugginn búinn að vera opinn lengi, sá frétt um Golden Globe, skrifaði eitthvað, ýtti á 'post'...original Sound Track.

Ekki frumlegt, en vona að það séu verðlaun fólgin í því að segja 'ferlega kúl' fyrir það að halda úti froskastökkunum. Það er erfitt að byrja á svona, og enn erfiðara að búa til tíma á hverjum degi.

Nr. 11 | posted by: Outlaw | 20.01.2010 | 6:01:39 | [+] |

Það er ekkert svo erfitt að byrja á þessu og það er ekkert mál að finna tíma fyrir þetta á hverjum degi þar sem ég get gert þetta heima hjá mér.

Það eina sem getur verið erfitt er að byrja. Lausnin á því máli er að hugsa ekki um hvað þetta er mikið, ákveða fyrirfram hvenær dags maður ætlar að gera þetta og passa sig að hugsa ekkert áður en maður tekur fyrstu. Eftir fyrstu er ekki aftur snúið.

Nr. 12 | posted by: anna | 20.01.2010 | 8:05:06 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web