Laugardagur, 30. janúar 2010
Byrjaði daginn á að fara á Esjuna með fjallahópnum í fáránlega góðu veðri. Gleymdi náttúrlega myndavél eins og asni, en tók nokkrar myndir á símann. Þær gera þessum morgni svo sannarlega ekki nógu góð skil.





Þetta var æðisleg ganga, mjög kalt á toppnum en frábært útsýni og ég var með gott nesti. Hrikalega er gott að borða mat úti þegar maður er búinn að hreyfa sig.
Ég fékk far hjá þeim sem ég var samferða bæði upp og niður fjallið og hann skutlaði mér þangað sem ég þurfti að fara á eftir. Ég get ekki sagt frá því núna hvert ég var að fara, en ég mun gera það á morgun, því það sem tók við eftir Esjuna í dag var.. geðveikislega gaman!
Tók 97 froskastökk dagsins þegar ég kom heim og þá á ég 3 daga og 297 froskastökk eftir af þessum 5050 sem alls eru í áskoruninni. Á eftir fór ég í laaaangt heitt bað, bloggaði á handklæðinu á meðan ég borðaði hreint skyr og flatkökur með hangikjöti og núna.. þarf ég að græja mig því ég er að fara í fertugsafmæli í kvöld.
Fokk hvað þetta er búin að vera skemmtilegur dagur!