www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
So far..
Sunnudagur, 03. janúar 2010

Við erum nú ekkert búin að sitja við non-stop í jólafríinu, en þetta er staðan á púsluspilinu akkúrat núna.

Í gær fórum við í bíó að sjá Avatar og ég varð ekki fyrir vonbrigðum, enda var ég að fara á magnað sjónarspil, ekki söguþráð og leik.

Í morgunmat fékk ég mér hráfæði, kókoskúlur með döðlum og gráfíkjum og hnetum. Víst er það hráfæði. Drakk jólasveinaöl með.

Í dag eru 70 burpees. 30 dagar eftir. Ég er ekki viss um að ég vilji að þessi áskorun endi, ef ég hugsa um vöðvana sem nú þegar eru komnir - og samt er ég ekki búin að gera helminginn af total burpee magninu.

Já.. og gleðilegt nýtt ár!


| anna | 14:31 | send to facebook |
comments

Maðurinn minn segist sjá mun á öxlunum á mér, ég sé engan mun né finn á fötum, og ég hef alls ekki skorið niður blessaða þaulsetnu bumbuna mína, en ég skelf og titra eftir stökkin og svitna í um 20 mínútur eins og ég sé í sánu.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 3.01.2010 | 18:15:21 | [+] |

Ég finn töluverðan mun á handleggjunum og fótunum. Er hætt að svitna jafn mikið en tek þetta núna í 20x lotum með smá hvíld á milli.

En nota bene, ég er ekki ennþá búin að ná helming af froskastökkvamagninu, næ því á næstu dögum - plús - ég er búin að liggja svoleiðis í gotteríi og mat yfir jólin og á aðventunni, svo ég reikna með að jólafitan fari í froskastökkvum í janúar! hehehe wink

Nr. 2 | posted by: anna | 4.01.2010 | 1:01:36 | [+] |

Þið eruð ferlega iðnar. Urr!!

Púsluspil ársins 2010 er tregablandaður skilningur á því hvað Ísland er; hvítt upp í fjallstoppa, hörku frost, heiður himinn, og blankandi logn. Snjórinn verður blanda af aqua bláum ljóma og bleikrauðum skýjum, sem ekki einu sinni væri hægt að koma fyrir í einum og sama kokteilnum. Í asnaskap er svo kveikt á útvarpinu...

Nr. 3 | posted by: Outlaw | 4.01.2010 | 17:21:25 | [+] |

Þarftu að hætta? Heldurðu ekki svo bara áfram að gera hundrað stökk á dag það sem eftir er? Spyr sú sem er komin upp í 5 ... embarassed

Nr. 4 | posted by: Sliban | 5.01.2010 | 10:10:30 | [+] |

Ég efast um að ég geri 100 á dag, en ég gæti vel hugsað mér að gera 60 áfram daglega.

Ekki láta þetta vaxa þér í augum, þetta er ekkert mál ef þú ákveður það smile

Nr. 5 | posted by: anna | 5.01.2010 | 11:07:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web