www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Snilld
Föstudagur, 08. janúar 2010

Þegar ég kom heim úr vinnunni áðan tilkynnti ég krökkunum að í dag, og eftirleiðis á föstudögum þegar þau eru að fara til pabba síns, beri þeim að skila mér íbúðinni hreinni áður en þau fara.

Einkasonurinn slökkti á playstation, stóð upp og lýsti því yfir að hann hafi nú bara aldrei á ævinni heyrt annan eins yfirgang og frekju. En tók nú samt til í stofunni áður en hann fór. Frumburðurinn sá um að setja óhreint leirtau í uppþvottavélina og nú hlusta ég á hana mala í eldhúsinu - uppþvottavélina.

Af hverju datt mér þetta ekki í hug áður?

Á meðan þau voru að þrífa tók ég 75 froskastökk. Með armbeygju OG hala.

BOOOJAH!


| anna | 18:28 | send to facebook |
comments

Child labour, gotta luv it smile

Nr. 1 | posted by: Maggi G | 8.01.2010 | 19:35:10 | [+] |

Gæti virkað tvíeggjað.

Eru afleiðingar ef þau klára ekki í tíma? Frestast för til pabba? Ef þau vilja ekki vera hjá pabba sínum einhverja helgina, dugar að drasla út í eldhúsinu og neita að laga til?

Frábært að þau tóku til samt. Þurfti ekki neinar fortölur eða tuð?
Mín börn myndu ekki hlýða svona vel.

Til hamingju með árangurinn í froskastökkunum. Hef mest komist upp í 3 sjálfur.

Nr. 2 | posted by: enginn | 9.01.2010 | 8:45:40 | [+] |

Kannski, en þau gera reyndar oftast það sem ég bið þau um.

Hættirðu í þremur eða ertu að byrja? wink

Nr. 3 | posted by: anna | 9.01.2010 | 12:42:34 | [+] |

Ég er bara rétt að byrja.

Lýst þannig á 2010 að það sé rétta árið til að koma sér í form.

Ætla að taka þig mér til fyrirmyndar. Því stefni ég á að komast upp í 100 eftir 100 daga.

Nr. 4 | posted by: enginn | 9.01.2010 | 13:01:32 | [+] |

Það er nú bara eins og nafnið á færslunni - SNILLD! - og ég held að það sé rétt metið hjá þér, þetta er akkúrat rétta árið til að koma sér í form.

Endilega láttu mig vita hvernig gengur. Ég er einmitt að hita mig upp í að vinna dagsskammtinn smile

Nr. 5 | posted by: anna | 9.01.2010 | 13:05:59 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web