www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á réttri leið
Þriðjudagur, 19. janúar 2010

Eins og mér fannst það ömurlegt um daginn finnst mér allt í einu svo frábært að ég sé laus við hækjurnar, kók og sígarettur, og að mér líði betur án þeirra.

Ég er ennþá nikótínfíkill, nota tyggjó, svo markmiðinu er ekki alveg náð, en þegar mér finnst orðið ógeðslegt að reykja hlýtur það að teljast áfangi. Ég ætla að hætta að nota tyggjóið á þessu ári. Er að velta fyrir mér að hætta að nota það þegar ég klára áskorunina.

Og eins og alltaf þegar ég byrja að hreyfa mig fer ég strax að velja hollari mat. Þegar krakkarnir fá sér samloku á pönnu fæ ég mér gróft brauð með kæfu og venjulegt skyr, og mér finnst það betra. Mér líður líka svo miklu betur á allan hátt. Alveg ótrúlegt hvað matur skiptir miklu máli hvað bæði andlega og líkamlega vellíðan varðar. Ég borða nánast engan sykur, en ég er alltaf með ávexti við höndina og drekk nánast eingöngu vatn.

Ég hef orku allan daginn og þegar ég tek froskastökkin strax eftir vinnu hef ég orku allt kvöldið og líður vel. Ég er orðin þreytt um klukkan ellefu og ég sofna fyrir miðnætti - og - vakna fyrr á morgnanna, úthvíld.

Hver hefði trúað að það fylgdi því svona mikil vellíðan að lifa ábyrgu og reglulegu lífi. Ég held að ég hafi, satt að segja, aldrei gert það svona "vel" áður - enda vantaði alltaf hreyfinguna inní planið.

Í grunninn held ég að þetta sé froskastökkunum að þakka, sem er í sjálfu sér alveg frábært, því froskastökkin taka ekki langan tíma og þar sem ég geri þetta í stofunni heima hjá mér fer engin tími í að koma mér "á staðinn" eða heim aftur. Ég er búin að vita lengi að ég yrði að hreyfa mig reglulega og reyna að koma hreyfingu inní daglega rútínu hjá mér, og þökk sé þessari áskorun er það orðið þannig. Ég hreyfi mig á hverjum degi og líður vel þegar ég geri það - þó það sé massa erfitt.

Nú þarf ég bara að halda áfram á þessari braut.


| anna | 11:52 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web