www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Fjallkonan
Mánudagur, 18. janúar 2010

Ég var ekki fyrr búin að skrá mig í ferð á hæsta tind landsins í vor, 15. mars, en ég fékk tölvupóst frá gömlum vinnufélaga þar sem hann bauð mér að koma með í fullt af ferðum, þar á meðal á Eyjafjallajökul í sumar. Ekkert smá spennandi!

Ég hef líka ákveðið að næsta "froskastökks-áskorun" muni innihalda æfingar sem nýtast mér í fjallgöngu. Ferðin á Hvannadalshnjúk er í raun fjórtán ferðir, þrettán æfingaferðir og sú fjórtánda beint á toppinn.

Nú sit ég í vinnunni og brosi útað eyrum.
Ég hlakka svo til sumarsins.


| anna | 11:58 | send to facebook |
comments

Þetta hljómar ekkert smá vel. Frábært. Ég veit að þú átt eftir að negla þetta. Varstu búin að skoða aðrar æfingar sem þokkadísinn með hreiminn býður upp á þarna á youtube (sú sem er flottast að sýna karlmönnum fyrir stökkin)? Ég bíð spennt eftir fréttum af næstu áskorun þó ég hlakki þokkalega mikið til að fá kannski eins og tveggja daga frí. Gerði tilraun í gær. Hvíld og fín fór ég niður á hnén og gerði armbeygjur. Gerði 15 í röð án þess að finna fyrir því, það er enginn smá árangur, finnst mér! Endaði með að gera 3x15, síðasta umferðin var erfið. En ég er alltaf á hnjánum og franskir æfingagúrúar segja að ég megi þaðsmile

Nr. 1 | posted by: Kristín | 18.01.2010 | 14:13:58 | [+] |

Mér finnst það æðislegur árangur!

Ég er nú að hugsa um að sjá hvað ég get gert margar armbeygjur í röð, ég geri þær á tánum reyndar. Þegar ég byrjaði á þessu gat ég ekki gert eina armbeygju á tánum. Það var no way, svo þetta er engin smá árangur á ekki lengri tíma finnst mér - og án þess að vera í einhverju massa prógrammi.

Ég er ekkert byrjuð að skoða aðrar æfingar, er á fullu að skipuleggja næstu vikur og mánuði í fjallaklifri smile - en ég mun auðvitað blogga um næstu æfingar sem ég skora á sjálfa mig að gera eins og þetta.

Ætla samt ekki að birta vídeó fyrr en ég er orðin eins og þessi stelpa þarna á youtube angel

Nr. 2 | posted by: anna | 18.01.2010 | 14:49:32 | [+] |

Má ég spyrja með hvaða aðilum þú valdir að fara á Hnúkinn, eða ölluheldur, hvað prógramm þú ætlar að nýta þér til uppgöngunnar?

Nr. 3 | posted by: Ester Ósk | 18.01.2010 | 15:57:02 | [+] |

Ég er að fara í þessar ferðir:
http://www.fjallafelagid.is/ferdir/14

Ert þú að fara eitthvað í svona ferðir?

Nr. 4 | posted by: anna | 18.01.2010 | 22:43:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web