Í lok mánaðarins er ég að fara í klikkað diskó/fönk fertugsafmæli og það er ætlast til þess að maður sé dressed for the occasion. Ég er með valkvíða dauðans, hvort á ég velja A, eða B?
| anna | 15:00 |
comments
Mér sýnist A vera aðeins styttri
Þú verður flaming hot í þessu dressi... við erum að tala um contributing to global warming hot
Ég ætla að sjá til með stígvélin, þau eru náttúrlega geðveikislega flott, en þetta er bara eitt partý og ég er ekki mjög efnuð manneskja. En F O K K hvað mig langar í þau!
Nr. 10 | posted by: anna |
22.01.2010 | 10:15:20 | [+] |
Númer hvað notarðu af skóm? Ég á vinkonu sem gæti átt svona eitthvað, en hún er samt með frekar stóran fót. Svo á ég aðra vinkonu sem er í 36, 37 sem á skófjölda í þriggja stafa tölu, hún er samt meira svona pinnahæll held ég.
Ég er alvarlega að hugsa um að fá mér kannski tattoo, vandamálið er að ég er með eitt og maður má víst ekki vera með slétta tölu, segja hjátrúarfullir, svo ég þyrfti að fá mér tvö ef ég slæ til.
Hvorttveggja forljótt. Þú hlýtur að geta fengið eitthvað álíka hallærislegt í Kolaportinu á 500 kall og þá áttu eftir pening til að kaupa þér eitthvað almennilegt í staðinn fyrir svona grímubúning.
Nr. 15 | posted by: Eva |
24.01.2010 | 10:16:10 | [+] |
Í Kolaportinu? Ég hef aldrei séð neitt fatarkyns sem mig langar að kaupa í Kolaportinu. Then again, kannski þarf maður að fara oftar en 1x á ári til að finna eitthvað.
Nr. 16 | posted by: anna |
24.01.2010 | 11:33:24 | [+] |