www.anna.is
ravings of a lunatic í janúar 2010
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
So far..
Sunnudagur, 03. janúar 2010

Við erum nú ekkert búin að sitja við non-stop í jólafríinu, en þetta er staðan á púsluspilinu akkúrat núna.

Í gær fórum við í bíó að sjá Avatar og ég varð ekki fyrir vonbrigðum, enda var ég að fara á magnað sjónarspil, ekki söguþráð og leik.

Í morgunmat fékk ég mér hráfæði, kókoskúlur með döðlum og gráfíkjum og hnetum. Víst er það hráfæði. Drakk jólasveinaöl með.

Í dag eru 70 burpees. 30 dagar eftir. Ég er ekki viss um að ég vilji að þessi áskorun endi, ef ég hugsa um vöðvana sem nú þegar eru komnir - og samt er ég ekki búin að gera helminginn af total burpee magninu.

Já.. og gleðilegt nýtt ár!


| anna | 14:31 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Ég heiti Anna og ég er kókisti.
Fimmtudagur, 07. janúar 2010

coca-cola-bottle.jpgFrá því ég var unglingur hef ég notað þennan svarta, ljúffenga drykk til að halda mér gangandi þegar ég er hætt að hafa orku til að starfa. Og mér hefur fundist það dásamlegt. Í gamla daga drakk ég kók í gleri en svo færði ég mig yfir í kók í dós. Í vinnunni hef ég drukkið tvær kók í dós yfir daginn og þannig haldið blóðsykrinum uppi allan daginn og þar með starfsorkunni. Ég þamba ekki kók, ég fæ mér sopa á ca tíu mínútna fresti og þannig endist þetta mér allan daginn. Hljómar svolítið eins og dömubindaauglýsing.

Ég ákvað að hætta að drekka kók fyrir jólin - nema þegar ég fer t.d. út að borða (sem gerist afar sjaldan). Mér finnst kók nefnilega betra með mat en vín og ég hef alltaf verið frekar léleg í léttvínunum. Á veitingastöðum sem bjóða bara uppá pepsí vel ég yfirleitt að drekka vatn.

Það var ekkert mál að hætta að drekka kók og vera kóklaus yfir hátíðarnar, enda þurfti ég lítið að nota heilann þar sem ég var í fríi. Nú, þegar ég er komin aftur í vinnuna, hef ég verið eins og draugur uppúr öðrum draug - bæði fór svefninn í algjört fokk hjá mér yfir hátíðarnar svo ég er að reyna að koma mér á réttan kjöl í því máli, en svo vantar mig líka sykurinn og koffeinið sem hefur haldið mér gangandi til þessa.

Ég byrjaði reyndar fyrsta vinnudaginn á nýju ári á því að mæta með tvær dósir af kók í vinnuna, af því ég var gjörsamlega ósofin. Ég gat bara drukkið aðra, hin fór í ruslið. Mér leið hreint út sagt illa að drekka kókið, sem er alveg ný upplifun fyrir mig.

graentte.jpgÍ fyrradag hrökk ég upp í vinnunni og áttaði mig á því að ég var búin að vera steinsofandi í korter - í stólnum. Daginn eftir (í gær) var ég sami draugurinn, og alveg að sofna, þegar ég ákvað að þetta væri bara ekki að ganga upp. Ég stóð frammi fyrir því að þurfa að velja. Annaðhvort þyrfti ég að finna örvandi efni sem virkar og er minna destructive en kók, eða fara bara í kókið aftur - þó mér líði ekki vel að drekka það. Ég fór að versla í matinn, keypti ávexti til að hafa í vinnunni og grænt te í pilluformi. Þegar ég kom aftur í vinnuna tók ég eina töflu. Og viti menn! Ég hef verið vakandi síðan - allavega á vinnutíma.

Ég er að vona að þetta sé varanlegt og að ég geti orðið húkkt á grænt te í staðinn fyrir svarta dauða.

Bless kók, halló grænt te!


| anna | 12:36 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Snilld
Föstudagur, 08. janúar 2010

Þegar ég kom heim úr vinnunni áðan tilkynnti ég krökkunum að í dag, og eftirleiðis á föstudögum þegar þau eru að fara til pabba síns, beri þeim að skila mér íbúðinni hreinni áður en þau fara.

Einkasonurinn slökkti á playstation, stóð upp og lýsti því yfir að hann hafi nú bara aldrei á ævinni heyrt annan eins yfirgang og frekju. En tók nú samt til í stofunni áður en hann fór. Frumburðurinn sá um að setja óhreint leirtau í uppþvottavélina og nú hlusta ég á hana mala í eldhúsinu - uppþvottavélina.

Af hverju datt mér þetta ekki í hug áður?

Á meðan þau voru að þrífa tók ég 75 froskastökk. Með armbeygju OG hala.

BOOOJAH!


| anna | 18:28 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Dagur 76
Laugardagur, 09. janúar 2010

Ég ætlaði að klára að þrífa íbúðina í gær áður en ég færi í helgarfrí, en ég var svo þreytt að um klukkan ellefu má segja að ég hafi yfirbugast úr þreytu, svo ég fór í bað og að sofa. Planið var að taka mig í smá dekur áður en ég færi að sofa, en ég var of þreytt.

Ég vaknaði klukkan níu í morgun og fékk mér hafragraut. Ég er búin að þrífa og rétt í þessu var ég að klára 76 burpees. Það lekur af mér svitinn, ég finn svitatauma leka niður bakið á mér, og ég hlakka til að fara í bað í hreinu baðherbergi. Þegar ég er búin í baði ætla ég að dekra við mig eins og planið var.

Á eftir er ég að fara að hitta vinkonu mína, við ætlum að borða saman og fara í bíó að sjá mynd sem mig er búið að langa að sjá lengi.

Woody Allen klikkar sjaldan.


| anna | 14:09 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Staðan á nýju ári
Sunnudagur, 10. janúar 2010

10-01-10.png

Á þessari mynd má sjá (á gráu tölunum) Önnu eftir massa fjalla sumar - en fyrir burpees áskorunina sem hófst á einu léttu froskastökki þann 26. október í fyrra. Á hinni myndinni með rauðu tölunum má sjá Önnu rétt eftir jólasukkið - og við erum að tala um MASSA jólasukk, nammi og laufabrauð og matur og rjómi og smjör og you name it.

Ég hef ekki þorað að mæla mig en fékk fyrirspurn um stöðuna í gær. Niðurstöðurnar komu mér á óvart.

Eru þið að sjá byssurnar! hehehe

77 burpees í dag..


| anna | 13:44 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Fyndið
Sunnudagur, 10. janúar 2010

Mér finnst svolítið fyndið að daginn sem ég klára burpees áskorunina, er groundhog day í bandaríkjunum.

Mig langar að taka aðra áskorun þegar þessi er búin, en hún þarf að vera geranleg. Veit einhver um aðra góða æfingu sem væri hægt að fara uppí 100 á 100 dögum?


| anna | 15:07 | permalink | comments (5) | send to facebook |
The central preoccupation of my life
Mánudagur, 11. janúar 2010

Luggage Salesman: Have you thought much about luggage, Mr. Banks?
Joe: No, I never really have.
Luggage Salesman: It is the central preoccupation of my life. You travel the world, you're away from home, perhaps away from your family. All you have to depend on is yourself. And your luggage.
Joe: Yeah, I guess that's true.
Luggage Salesman: Are you travelling light, or heavy?
Joe: Heavy.
Luggage Salesman: Flying?
Joe: Flying and by ship.
Luggage Salesman: An ocean voyage.
Joe: Yes.
Luggage Salesman: Ahh yes, so.. a real journey.
Joe: And then I will be staying on this island, and I don't even really know if I'll be living in a hut, or what.
Luggage Salesman: Very exciting. As a luggage problem. I believe I have just, the thing.

As the luggage salesman opens two doors, you hear and angel like choir and a big trunk is revealed

Joe: WOW!
Luggage Salesman: This! Is our premier steamer trunk. All handmade, only the finest materials. It's even watertight. Tight as a drum. If I had the need and the wherewithal, Mr. Banks, this would be my trunk of choice.
Joe: I'll take four of them.
Luggage Salesman: May you live to be a thousand years old sir.

http://www.youtube.com/watch?v=96tXkKFLXS4#t=1m49s


| anna | 20:09 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Hægt en örugglega
Mánudagur, 11. janúar 2010

Before

After

Trendið er orðið þannig að þegar ég geng framhjá borðinu lít ég yfir púslið, púsla þremur bitum og fer svo að gera eitthvað annað, svo restin mun ganga hægt.


| anna | 22:40 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Joe
Þriðjudagur, 12. janúar 2010


Just the way
Fimmtudagur, 14. janúar 2010

xxx says: ég er fastur í bandarískum tónlistarmönnum
xxx says: svona folk/working class heroes
xxx says: http://www.youtube.com/watch?v=ounJsqomcv8
Anna says: iðnaðarrokk
Anna says: ég trúi ekki að þú hafir sent mér þetta lag
Anna says: ég elska þetta lag
xxx says: billy joel er svalur
Anna says já
xxx says: á skemmtilega við núna smile
Anna says: smile
Anna says: takk
xxx says: Þakka þér


| anna | 10:01 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Hafragrautur
Föstudagur, 15. janúar 2010

Klukkan hálf átta í morgun spurði ég son minn hvort ég ætti að elda hafragraut fyrir okkur. Hann sagði "já", svo stóð hann upp og bætti við, "ég skal taka til í eldhúsinu, ég veit hvað þér finnst leiðinlegt að elda þegar allt er í drasli".

Eldhúsið var allt í drasli vegna þess að það var ekki búið að ganga frá eftir matinn kvöldið áður. Krakkarnir vita, vegna þess að ég hef sagt þeim það, að þegar ég kem heim úr vinnunni er ég oftar en ekki þreytt, og það kemur fyrir að mér fallast hendur þegar eldhúsið er í rúst. Ef þau ganga frá eftir sig og eldhúsið er sæmilega hreint þegar ég kem heim eru meiri líkur á því að ég eldi kvöldmat. Og þegar ég elda geng ég venjulega frá matseldinni sjálf, þó þau þurfi að ganga frá eftir matinn. En ég þarf alltaf að segja þeim að ganga frá eftir matinn og stundum geri ég það ekki vegna þess að ég er þreytt.

Á meðan ég eldaði hafragrautinn gekk hann samviskusamlega frá öllu óhreinu í uppþvottavélina og þegar grauturinn var tilbúinn, gekk ég frá pottinum og sleifinni í uppþvottavélina líka og við settumst niður í hreinu eldhúsi og borðuðum morgunmat saman.


| anna | 12:21 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Vængbrotin með engar hækjur
Föstudagur, 15. janúar 2010

Venjulega þá myndi ég kaupa mér sígarettur og kók og reykja eins og strompur og þamba kókið og vaka fram á nótt og skrifa eitthvað blogg þar sem ég geri lítið úr því hvað mér líður illa. Og mig er búið að langa í sígarettu annað slagið í dag. En þegar ég hugsa um að kaupa sígarettur þá hættir mig að langa. Fantasían er "ein sígaretta", ekki tuttugu, og þegar ég tek hugsunina lengra og hugsa um hvernig það er að anda reyknum að mér úr þessari einu sígarettu þá kúgast ég, og mig hættir að langa í þessa einu.

Og mig langar ekki í kók.

Mér finnst þetta ömurlegt.

Mér á ekki eftir að finnast það ömurlegt á morgun þegar ég geri 83 froskastökk. Málið er að ég veit ekki hvað annað ég á þá að gera. Ég kann ekki að kópa við sársauka án þess að hafa fíknirnar mínar. Hann bara er, og ég veit ekki hvað ég get gert svo hann fari.

Sumir nota áfengi, aðrir mat til að bæta upp eitthvað sem vantar. Mig langar ekki í áfengi og ég er ekki svöng.

Það eina sem mig langar í er nærvera, snerting og nánd. En ég get ekki keypt það og þó það væri til sölu útí tíu-ellefu, þá hefði ég sennilega ekki efni á því.

Svo ég græt á meðan ég skrifa um að mér finnst erfitt að hafa ekki fíknirnar mínar lengur til að hugga mig. Það er það eina sem mér dettur í hug að gera.


Glimmer
Sunnudagur, 17. janúar 2010

Í gær fann ég blogg sem ég féll strax fyrir. Matarblogg, æðislegur matur. Up-beat og jákvætt. Og ég sé að ég er alveg að misskilja þetta með hafragrautinn. Hafragrauturinn hjá þessari konu er eins og ævintýri.

Alveg eins og lífið á að vera - og eins og lífið getur verið þegar þú nennir að sinna því.

Jákvætt hugarfar best með glimmeri.
Þá glittir alltaf í það.


| anna | 13:57 | permalink | comments (0) | send to facebook |
No shit
Sunnudagur, 17. janúar 2010

As I look back on all my childhood dreams
My ideas of love weren't as foolish as they seemed
If I don't start looking now - I'll be left behind
And a good heart these days, it's hard to find
I know, it's a dream I'm willing to defend
I know, it will all be worth it in the end

84 froskastökk búin fyrir daginn í dag.

Mittið komið niður í 66.

16 dagar eftir.


| anna | 14:24 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Spurning
Sunnudagur, 17. janúar 2010

Það var verið að spyrja mig hvort ég sé til í að koma á Hvannadalshnúk í sumar.

Á ég að treysta mér í svoleiðis ferð?


| anna | 21:57 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Fjallkonan
Mánudagur, 18. janúar 2010

Ég var ekki fyrr búin að skrá mig í ferð á hæsta tind landsins í vor, 15. mars, en ég fékk tölvupóst frá gömlum vinnufélaga þar sem hann bauð mér að koma með í fullt af ferðum, þar á meðal á Eyjafjallajökul í sumar. Ekkert smá spennandi!

Ég hef líka ákveðið að næsta "froskastökks-áskorun" muni innihalda æfingar sem nýtast mér í fjallgöngu. Ferðin á Hvannadalshnjúk er í raun fjórtán ferðir, þrettán æfingaferðir og sú fjórtánda beint á toppinn.

Nú sit ég í vinnunni og brosi útað eyrum.
Ég hlakka svo til sumarsins.


| anna | 11:58 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Dagur 85
Mánudagur, 18. janúar 2010

Ég er búin með froskastökk dagsins. Tók 40 stk non stop, og svo 45 án þess að stoppa.

IMG_6044.jpg

Fáránlega hressandi.


| anna | 17:59 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Blast from the past
Mánudagur, 18. janúar 2010

Undanfarin kvöld hefur einkasonurinn verið að tala um að hann langi að uppgötva leyndardóma fortíðar - hvað leikjatölvur varðar. Sure, það er rosa hip og cool að eiga allskonar x-box og wii og ps3 - en, það jafnast nákvæmlega ekki neitt á við.. drumroll.. Nintendo NES!

(Angelic AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA sound)

nintendo_nes2.jpg

Í kvöld mætti, alveg óvænt, velunnari fjölskyldunnar með stóran pakka sem hann afhenti okkur. Yngsti meðlimur fjölskyldunnar fékk að opna, og í kassanum var Nintendo NES vél - in mint condition. Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé son minn missa málið. Hann gat ekki talað, hann varð svo hissa.

Það er nefnilega tvennt ólíkt að fá eitthvað sem fæst útí búð - eða fá eitthvað sem er illfáanlegt.

Ekki nóg með að við fengum vélina, heldur var original blaster gun með. Allir sem komnir eru til vits og ára vita hvað er fáránlega gaman að spila duck hunt. Því það er fáránlegt, þetta er bara of silly leikur til að hann sé eitthvað annað en frábær.

Render6.jpg

Þvílíkt kvöld hjá okkur. Mér hefur farið verulega aftur í færni minni en djö er gaman að spila þessa leiki. Eldast lygilega vel.

Okkur vantar samt krúsjal leiki í þessa græju, svo ef einhver á Gunsmoke fyrir NES eða Zelda leiki sem hann vill gefa eða selja á sanngjörnu verði, endilega hafði samband!


| anna | 23:35 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Á réttri leið
Þriðjudagur, 19. janúar 2010

Eins og mér fannst það ömurlegt um daginn finnst mér allt í einu svo frábært að ég sé laus við hækjurnar, kók og sígarettur, og að mér líði betur án þeirra.

Ég er ennþá nikótínfíkill, nota tyggjó, svo markmiðinu er ekki alveg náð, en þegar mér finnst orðið ógeðslegt að reykja hlýtur það að teljast áfangi. Ég ætla að hætta að nota tyggjóið á þessu ári. Er að velta fyrir mér að hætta að nota það þegar ég klára áskorunina.

Og eins og alltaf þegar ég byrja að hreyfa mig fer ég strax að velja hollari mat. Þegar krakkarnir fá sér samloku á pönnu fæ ég mér gróft brauð með kæfu og venjulegt skyr, og mér finnst það betra. Mér líður líka svo miklu betur á allan hátt. Alveg ótrúlegt hvað matur skiptir miklu máli hvað bæði andlega og líkamlega vellíðan varðar. Ég borða nánast engan sykur, en ég er alltaf með ávexti við höndina og drekk nánast eingöngu vatn.

Ég hef orku allan daginn og þegar ég tek froskastökkin strax eftir vinnu hef ég orku allt kvöldið og líður vel. Ég er orðin þreytt um klukkan ellefu og ég sofna fyrir miðnætti - og - vakna fyrr á morgnanna, úthvíld.

Hver hefði trúað að það fylgdi því svona mikil vellíðan að lifa ábyrgu og reglulegu lífi. Ég held að ég hafi, satt að segja, aldrei gert það svona "vel" áður - enda vantaði alltaf hreyfinguna inní planið.

Í grunninn held ég að þetta sé froskastökkunum að þakka, sem er í sjálfu sér alveg frábært, því froskastökkin taka ekki langan tíma og þar sem ég geri þetta í stofunni heima hjá mér fer engin tími í að koma mér "á staðinn" eða heim aftur. Ég er búin að vita lengi að ég yrði að hreyfa mig reglulega og reyna að koma hreyfingu inní daglega rútínu hjá mér, og þökk sé þessari áskorun er það orðið þannig. Ég hreyfi mig á hverjum degi og líður vel þegar ég geri það - þó það sé massa erfitt.

Nú þarf ég bara að halda áfram á þessari braut.


| anna | 11:52 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Unfuckingbelievable
Þriðjudagur, 19. janúar 2010

Ef ég var sveitt í gær er það ekkert miðað við hvað ég er sveitt núna, enda var ég að klára 86 froskastökk í einni lotu. Ég ætlaði að fara uppí fimmtíu og taka pásu, en þegar ég var komin þangað fann ég að ég átti það mikið eftir að ég ákvað að klára þetta bara.

Ég finn ekkert smá fyrir vöðvunum í handleggjunum eftir þetta og ég hef aldrei á ævinni svitnað svona mikið.

Já, ég er með vitni.

Ég er farin að velta fyrir mér hvað ég á að gera til að verðlauna mig þegar þessu er lokið, en mér dettur ekkert í hug. Eru þið með einhverjar hugmyndir?


Diskó/Fönk fertugsafmæli
Fimmtudagur, 21. janúar 2010

Í lok mánaðarins er ég að fara í klikkað diskó/fönk fertugsafmæli og það er ætlast til þess að maður sé dressed for the occasion. Ég er með valkvíða dauðans, hvort á ég velja A, eða B?


Gleðilegan bóndadag!
Föstudagur, 22. janúar 2010

Ég óska íslenskum karlmönnum gleði og hamingju á þessum yndislega degi.

Njótið lífsins!


| anna | 11:04 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Búin að brjóta 90 froska múrinn
Sunnudagur, 24. janúar 2010

Djöfull er þetta hressandi. 91 froskastökk í búin dag og níu dagar eftir í 100.

Ég ætlaði að halda mér í 100 í 100 daga, en þegar ég fór að finna vöðvana framaná lærunum og hvað þeir eru búnir að bólgna ótrúlega út, hætti ég við. Þessi æfing reynir greinilega mikið á þessa vöðva og ef ég held áfram í 100 á dag mun ég líta út eins og.. ég veit ekki hvað.

Nú er planið að droppa niður í 50 froskahopp á dag þegar áskorunin klárast og taka tvær æfingar með, uppí 100 á 100 dögum.

Í kvöld er það svo dinner and a movie.


| anna | 15:26 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Barry Manilow Part II
Mánudagur, 25. janúar 2010

Ég sýndi klippu úr þessum Family Guy þætti fyrir ekki svo löngu síðan, en það var áður en ég vissi að þeir tækju Barry Manilow djókið lengra. Þetta byrjar 1min og 21sek inní þáttinn og þeir taka þetta alla leið á tónleikana og það er algjörlega priceless.

(Klippan er allur þátturinn, ég hef bara horft á Barry - það var nóg fyrir mig.)

Oh Quagmire...

Linkur á þáttinn.


| anna | 18:06 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Huggun
Föstudagur, 29. janúar 2010

Ég var hjá tannlækni í morgun. Aðgerðin gekk vel, ég á að mæta hjá honum næst eftir ár til að fylgjast með beinígræðslunni og hvort hún er ekki til friðs.

Þegar ég lá í stólnum stóð ég mig að því að hughreysta sjálfa mig. Mér finnst svo fyndið hvað mannskepnan er útsjónasöm, því ég var ekki meðvituð um að ég væri að gera þetta. Ég er rétthent og nota hægri höndina miklu meira en þá vinstri, en í þessari stöðu var sú hægri, sú "sterka", alveg máttlaus, en sú vinstri og "veikari" kom to the rescue og hélt alveg þéttingsfast um þessa hægri, rétt eins og það væri einhver annar hjá mér að veita mér stuðning.


| anna | 12:33 | permalink | comments (0) | send to facebook |
D I S C O
Föstudagur, 29. janúar 2010

Í kvöld var ég að tala við karlmann sem hallaði sér skyndilega upp að mér eins og hann ætlaði að hvísla einhverju að mér, en ég heyrði ekkert. Þegar hann rétti úr sér sagði hann: "mikið rosalega er góð lykt af þér - ég er búin að finna þessa lykt frá því ég fór að tala við þig og hélt að hún væri af þér, og það var rétt."

Ég veit ekki af hverju, en af því ég er svo innstillt á lykt sjálf þá finnst mér alltaf svo gaman þegar einhver sér ástæðu til að minnast á að það sé góð lykt af mér.

Síðast þegar ég hitti þennan mann var ég gift og hann talaði fyrst við mig eins og ég væri það ennþá. Spurði hvort við værum ennþá í íbúðinni og hvernig gengi. Ég hélt fyrst að hann væri að rugla mér saman við einhverja aðra, það eru svo mörg ár síðan ég var í sambúð með einhverjum. Vá hvað þetta var skrítin upplifun.

Pöntunin á diskóbúningnum fór eitthvað á mis - EN - þökk sé frábæru fólki hefur mér verið reddað silfur pallíettutopp, og stuttu leðurpilsi. Killer.

Djöfull verður þetta massa skemmtilegt afmæli.


| anna | 22:28 | permalink | comments (3) | send to facebook |
So far
Laugardagur, 30. janúar 2010

Byrjaði daginn á að fara á Esjuna með fjallahópnum í fáránlega góðu veðri. Gleymdi náttúrlega myndavél eins og asni, en tók nokkrar myndir á símann. Þær gera þessum morgni svo sannarlega ekki nógu góð skil.

IMG00425.jpg

Þetta var æðisleg ganga, mjög kalt á toppnum en frábært útsýni og ég var með gott nesti. Hrikalega er gott að borða mat úti þegar maður er búinn að hreyfa sig.

Ég fékk far hjá þeim sem ég var samferða bæði upp og niður fjallið og hann skutlaði mér þangað sem ég þurfti að fara á eftir. Ég get ekki sagt frá því núna hvert ég var að fara, en ég mun gera það á morgun, því það sem tók við eftir Esjuna í dag var.. geðveikislega gaman!

Tók 97 froskastökk dagsins þegar ég kom heim og þá á ég 3 daga og 297 froskastökk eftir af þessum 5050 sem alls eru í áskoruninni. Á eftir fór ég í laaaangt heitt bað, bloggaði á handklæðinu á meðan ég borðaði hreint skyr og flatkökur með hangikjöti og núna.. þarf ég að græja mig því ég er að fara í fertugsafmæli í kvöld.

Fokk hvað þetta er búin að vera skemmtilegur dagur!


| anna | 18:03 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Eitthvað til að hræðast?
Sunnudagur, 31. janúar 2010

_MG_4280.jpg

_MG_4307.jpg

_MG_4386.jpg


Það sýnir sig
Sunnudagur, 31. janúar 2010

_MG_4330.jpg

Ekkert að sjá þótt þú setjist uppá.
Soldið á ská.
En það hefst að lokum.
Og sýnir sig...
kannski seinna.

Veist ekki hvað, en þú situr áfram
á sama stað,
það gæti gerst
að það sýni sig hugsanlega nú.

Ofan við ský er álft á flugi
og endurtekur fyrir bí
að jafnan hafi til þess sést hér
þó ekkert bóli nú á því.

Og kannski er svo enn að þú sitjir stilltur.
Því svona eru menn,
einn viss, einn villtur.
Það sýnir sig...

Ofan við ský er álft á flugi
og endurtekur fyrir bí
að jafnan hafi til þess sést hér
þó ekkert bóli nú á því.

Og því er svo enn að þú situr stilltur.
Því svona eru menn,
einn viss, einn villtur.
Það sýnir sig...
Sýnir sig

Sigurður Guðmundsson/Hjálmar



ravings í janúar 2010
monthly archive

links
blogs
links - web