www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Ólívur
Fimmtudagur, 10. desember 2009

Einu sinni fannst mér ólívur alveg ógeðslega vondar og pestó og allt þetta dót. En svo fór ég að umgangast svo mikið af fólki sem borðaði þetta eins og því væri borgað fyrir - og svo nautnalega, að mig langaði að prufa. En mér fannst þetta ennþá vont á bragðið. Reyndi samt að fá mér eina og eina til að vera töff eins og allir hinir, og fela grettuna.

Núna er ég allt í einu með massa craving í ólívur og mér finnst þær svo góðar. Í millitíðinni hef ég reyndar lært að meta allskonar pestó og svartar ólívur, en ég er með massa craving í grænar ólívur núna.

Kannski þarf líkaminn eitthvað efni sem er í ólívum til að byggja froskastökks með armbeygju og halavöðva?


| anna | 17:41 | send to facebook |
comments

Það er alla vega eitthvað ótrúlega gott efni í ólívum, ég man þegar ég smakkaði fyrst var mér sagt að þetta væri vont en maður yrði fljótt hooked. Það gekk eftir, ég þurfti þrjár á sama kvöldi og var fallin.
Mitt mesta ólívu-craving var þegar ég var ólétt (og eina alvöru craving sem ég fann fyrir, ég hreinlega drakk ólívuolíu, svona alvöru græna og bragðgóða).
Ég hef hins vegar ekki enn fundið fyrir þessu með stökkunum góðu, en ég er nú bara í sjö, hver veit?

Nr. 1 | posted by: Kristín | 10.12.2009 | 19:58:56 | [+] |

Mér skilst að ólívur séu ákaflega saltar, kannski svitnið þið svona svakalega í stökkunum...?

Eða nei annars. Dömur svitna ekki. Þær perspirera pínupons.

Nr. 2 | posted by: baun | 10.12.2009 | 21:50:38 | [+] |

Ég svitna MJÖG mikið í stökkunum. Finn alveg perspírera þannig að gufar af mér.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 11.12.2009 | 9:54:37 | [+] |

Ég er nú að svitna í hálftíma eftir að ég er búin. Þarf að bíða eftir að það mesta sé liðið hjá svo það taki því að fara í bað!

Nr. 4 | posted by: anna | 11.12.2009 | 14:24:36 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web