www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óhljóð
Fimmtudagur, 10. desember 2009

Einkasonurinn hefur fundið stillingu á hljómborðinu sem kallar fram allskonar skot og sprengi hljóð. Í gærkvöldi frumflutti hann Skotsinfóníu í C dúr af innlifun á meðan ég lá sofandi í sófanum.

Það sem mig dreymdi á meðan var ansi skrautlegt og þegar ég vaknaði og spurði hvað hann væri eiginlega að gera sagði hann: "ég er að spila stríð" og ég horfði á litlu fingurna hans dansa fimlega um nótnaborðið.

Nú hef ég ekki prufað að vera í stríði en þetta hljómaði mjög sannfærandi hjá honum.

Mig langar að finna hóstastillingu á þessari græju og semja Flensupolka.


| anna | 12:58 |
comments

Er ekki einfaldast að spila flensupolkann á einkasoninn? Hann er með hóstastillingu.

Nr. 1 | posted by: Yngvi | 10.12.2009 | 13:23:04 | [+] |

Aha! Þetta eru sennilega fráhvörf hjá mér, hann er alveg hættur að hósta drengurinn!

Nr. 2 | posted by: anna | 10.12.2009 | 13:25:22 | [+] |

FX rásin í GS hljómborðum er skemmtileg. Öskur, fótatak, bílslys, fossar, járnbrautarlestir og þyrlur. Og margt fleira.

Nr. 3 | posted by: Elías | 10.12.2009 | 15:14:53 | [+] |

Gott að heyra Ósk!

Það er örugglega FX rás á þessari græju, kíki betur á það hehehe (í headphones Ósk, í headphones)

Ég hef afar litlar áhyggjur af því að erfinginn verði erfiður smile

Nr. 4 | posted by: anna | 10.12.2009 | 15:36:15 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web