www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ertu til í að koma ómáluð?
Miðvikudagur, 16. desember 2009

"Þú getur komið með græjur og ég tek þá bara myndir af þér á meðan þú ert að taka þig til - en mig langar að taka myndir af þér ómálaðri."

Hvaða ónáttúra er að biðja mig um að vera ómáluð í myndatöku, hugsaði ég, en sagði já - vitandi að ég gæti þá bara látið hann henda öllum "ómáluðu" myndunum. En þegar ég kom heim úr vinnunni í gærkvöldi steinsofnaði ég, svaf yfir mig og þegar Ingó hringdi í mig korter yfir átta var ég nývöknuð og rauk strax út.

Þetta er akkúrat ástandið sem maður á að vera í þegar einhver er að fara að taka myndir af þér.

_MG_1811-220.jpgVið byrjuðum, eins og venjulega, og á fystu myndunum var ég þreytt og utanvið mig.

Hann tók breik, fór að stilla lýsinguna, færa kastara og fleira þegar ég spurði hvort ég mætti ekki taka burpees æfingarnar á meðan. Ekkert mál. Ég tók tíu og svo aftur tíu. Á eftir var ég svo þreytt að ég lagðist á gólfið. Hann breytti lýsingunni aftur og fór að taka myndir af mér á gólfinu. Ég hef ekki verið svona afslöppuð í myndatöku áður, bæði erum við Ingó byrjuð að mynda e.k. relationship, ég treysti honum því þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann tekur myndir af mér, og ég var líka þreytt, bæði eftir daginn og líka eftir æfingarnar sem ég tók.

Mér finnst þessi ljósmyndasession okkar Ingó svo skemmtileg - og ég nennti ekki að mála mig þegar á hólminn var komið, svo þetta eru face off myndir.

_E9F9845-2.jpg

_E9F9935-2.jpg

_MG_1910-1.jpg

_MG_1913-1.jpg


| anna | 22:13 |
comments

Þú ert fín ómáluð, auðvitað! Ég klúðraði stökkunum í gær, glæsilega. En ég er líka hálflasin og fór í verkefni sem var ekki á listanum og ruglaði öllu. Spurningin er hvort ég geri fimmtán í dag, eða þessar fjórtán sem ég átti að gera í gær. Hm.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 17.12.2009 | 8:35:43 | [+] |

Neeeeeeeeeeeeeei! hehehe Það er allt í lagi. Ef þú ert slöpp myndi ég sleppa þessu og halda áfram þar sem frá var horfið þegar þú nærð fyrri styrk. Ég sleppti úr fjórum dögum í kringum afmælið hans pabba en gerði tvöfalt þangað til ég var búin með það sem ég skuldaði.

Nr. 2 | posted by: anna | 17.12.2009 | 9:29:45 | [+] |

Flottar myndir!

Nr. 3 | posted by: tótalí | 17.12.2009 | 11:31:33 | [+] |

Þetta er flottar myndir!

Nr. 4 | posted by: Harpa J | 17.12.2009 | 17:16:56 | [+] |

Ég tók fimmtán í dag og var einmitt að pæla í þessu með að borga upp skuldina seinna... alla vega held mínu strikismile

Nr. 5 | posted by: Kristín | 17.12.2009 | 23:08:53 | [+] |

Gleðileg jól

Nr. 6 | posted by: noone | 24.12.2009 | 16:06:20 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web