Miðvikudagur, 02. desember 2009
Pabbi, eða afi Úlfur eins og hann er kallaður á þessu heimili, varð sextugur í gær. Á laugardaginn fórum við systurnar með honum út að borða en á meðan við vorum að borða var fólk að tínast inná efstu hæðina á Einari Ben þar sem surprise partý beið pabba eftir matinn. Við vorum búnar að hafa samband við fullt af fólki sem pabbi hefur ekki séð í mörg ár.

Mér finnst þessi mynd af pabba og Júlíu ein af bestu myndum kvöldsins, tekin í matnum.

Hér er pabbi kominn á Einar Ben og allir búnir að hrópa "surprise" !

Við systurnar vorum ekkert smá ánægðar með hvað þetta tókst vel til. Júlía stóð nú samt eiginlega fyrir þessari surprise veislu, fékk hugmyndina og sá um allan undirbúning. Það eina sem ég gerði var að hringja í fólk og bjóða því að koma. Ég er svo ánægð með systur mína, þetta var æðislega vel heppnað!

Í gærkvöldi var svo haldin aðeins minni veisla fyrir nánustu ættingja og þar afhentum ég og krakkarnir afa Úlf jóladagatal sem við útbjuggum fyrir hann í afmælisgjöf. Get náttúrlega ekki sagt frá því hvað er í gluggunum, hann lofaði að opna bara einn glugga á dag!!
Þetta eru búnir að vera svo skemmtilegir dagar og næsta afmæli sem ég kvíði fyrir er hætt að vera 60.
Ég er komin uppí 70.