Mánudagur, 14. desember 2009
Ég var að klára að gera 50 burpees á stofugólfinu. Það þýðir að ég er búin með helminginn af tímanum, en aðeins lítinn hluta af burpees. Á morgun geri ég 51.
Akkúrat núna líður mér eins og ég sé að örmagnast. Mér er hrikalega illt í handleggjunum, magavöðvunum og lærvöðvunum. Ég er fáránlega móð og svitna á stöðum sem ég vissi ekki að ég hefði staði.
En djöfull er ég ánægð með mig. Ég fokking rúla.