www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
100 á 100 dögum
Miðvikudagur, 09. desember 2009

Fyrir 45 dögum síðan tók ég áskorun. Þessi áskorun kom frá konu sem tók þátt í sterkasta kona Íslands og snýst um að taka ákveðna æfingu á hverjum degi og bæta einni við þangað til ég fer uppí 100 - á hundrað dögum.

Þetta er æfingin:

Karlmönnum finnst skemmtilegra að skoða þetta demo:

Ég byrjaði á að taka eina, dag no 2 tók ég tvær o.s.frv. Í dag er ég komin uppí 45 og 2. febrúar klára ég 100. Ég mun taka 60 á aðfangadag.

Í sjálfu sér er aðal áskorunin ekki að fara uppí hundrað, ég get það alveg í dag með stuttum hléum. Aðal áskorunin er að gera þetta á hverjum degi. Finna tíma til þess. Byrja án þess að pæla í að þetta sé erfitt. Halda áfram þó maður sé orðinn þreyttur í 30. Gefast ekki upp.

Allavega er það aðal áskorunin fyrir mig.

Ég mæli ekki með að gera þetta í gallabuxum.

Eitt hefur samt komið upp, því þetta er kallað burpee á ensku. Er til nafn á þessa æfingu á íslensku? Ég og Kristín ákváðum að kalla þetta "þræfingu" (þrek-æfing). Hefur einhver betri tillögu?


| anna | 13:00 |
comments

Froskstökk með armbeygju og hala ? Mér finnst að svona æfing eigi skilið mörg orð colgate

Nr. 1 | posted by: ósk Gunnlaugsdottir | 9.12.2009 | 15:44:52 | [+] |

Ósk! Mér finnst þetta æðislegt nafn!

-og ég er sammála með orðafjöldann.

Froskastökk með armbeygju og hala colgate
Hvað segir þú Kristín?

Nr. 2 | posted by: anna | 9.12.2009 | 15:46:42 | [+] |

Þetta er nú í daglegu tali, að mínu viti, kallað froskar með armbeygju og hoppi

Nr. 3 | posted by: Kjartan Þór | 9.12.2009 | 18:36:51 | [+] |

Og já það er skemmtilegra að horfa á stelpuna og það er ekki bara vegna þess að hún er hot heldur líka því hún gerir æfinguna miklu betur.

Nr. 4 | posted by: Kjartan Þór | 9.12.2009 | 18:40:49 | [+] |

Froskar með armbeygju og hoppi. Má samt kalla þetta froskastökk með armbeygju og hala? Mér finnst það miklu skemmtilegra.

Jájá ég tek þetta alveg eins og þessi stelpa, engin munur! angel

Nr. 5 | posted by: anna | 9.12.2009 | 19:02:01 | [+] |

Stundum er það sem þú bloggar alveg hræðilega spot on, séð í hinu víðara samhengi.

Af hverju ekki? Það örlar á brjálsemi í þessu sem gerir þetta áhugaverðara. Öðruvísi.

1

Nr. 6 | posted by: Outlaw | 9.12.2009 | 20:10:59 | [+] |

Ég hef þurft að taka smá breik eftir hverjar tíu æfingar undanfarna daga, en í dag gerði ég 45 án þess að taka afgerandi break.

Þetta er auðvitað bilun Outlaw, eins og svo margt annað. smile

Nr. 7 | posted by: anna | 9.12.2009 | 23:07:27 | [+] |

Þræfing er málið.

Ég er farinn að stunda þræfingu.

Orðið finnst ekki einu sinni á Google.

Þetta er betra og verður Herbalife, fótanuddtæki, hollustujógúrt og stafagangur til samans. Tala ekki af reynslu.


2

Nr. 8 | posted by: Outlaw | 10.12.2009 | 5:51:48 | [+] |

...verður "vinsælla en...." vantar að ofan

Nr. 9 | posted by: Outlaw | 10.12.2009 | 5:56:14 | [+] |

Mér líst vel á froskastökkið þó ég hafi verið farin að venjast þræfingunni. Eins gott að þrekkan var kæfð í fæðingu.
Og ég segi eins og Anna, ég er alveg eins og konan á myndinni. Nema ég geri þetta yfirleitt á skónum einum fata, svona fyrir nágrannann á móti.

Nr. 10 | posted by: Kristín | 10.12.2009 | 6:47:43 | [+] |

Búinn að prófa þetta og finn að þetta á við mig. Enda töluverður froskur í mér bæði í vexti og andliti.

Kemst örugglega upp í hundrað fyrir jól, samtals. Þetta tekur á.

Stúlkan var meira fyrir augað, en myndatakan betri af piltinum.

Nr. 11 | posted by: Enginn | 10.12.2009 | 8:03:36 | [+] |

Kvartar fólkið á neðri hæðinni ekkert?

(Ps, ég skil ekkert í þessu GW!)

Nr. 12 | posted by: AlanHudson | 10.12.2009 | 8:24:21 | [+] |

Það hefur engin kvartað ennþá, Ósk: verði þið fyrir miklu ónæði af þessu?

(ég er búin að vera að fikta í GW og held utanum allskonar stuff þarna núna, sem ég var með áður í google docs)

Nr. 13 | posted by: anna | 10.12.2009 | 10:15:52 | [+] |

Ég verð ekki vör við Froskastökk með armbeygju og hala óhljóð og stríðssinfónían í C-dúr fór algjörlega framhjá mér, því miður. sour

Annars þori ég lítið að kvarta yfir neinu fyrr en það kemur desibil reynsla á næturrokur erfingjans væntanlega melodramatic

Það verður fjör 0

Nr. 14 | posted by: Ósk Gunnlaugsdottir | 10.12.2009 | 15:13:17 | [+] |

Í BootCamp eru burpees kallaðir súperfroskar winky

Nr. 15 | posted by: Soffía (Abfab) | 20.12.2009 | 17:07:26 | [+] |

Var að skoða þessi video - núna fyrst já! En þau eru ekki alveg í samræmi við Crossfit-burpees þar sem hvorugt þessara ofurmenna fara alla leið niður. Þettar einmitt kjarninn í Crossfittinu að klára æfinguna til fulls. Þegar farið er niður í armbeygjuna eiga brjóst, kviður og læri að snerta gólfið. Það gerir æfinguna mun erfiðari en jafnframt áhrifaríkari.
Mig minnir reyndar að ég hafi kennt þér æfinguna hér heima eitt kvöldið svo ég geri fastlega ráð fyrir því að þú hafir gert hana betur en þessi tvö hér að ofan!

Gangi ykkur vel sem eruð enn að og endilega reynið að fara alla leið niður í gólf!!
kv. Edda Burpees áskorandi

Nr. 16 | posted by: Edda | 2.02.2010 | 11:20:41 | [+] |

Þar sem þú varst búin að segja mér þetta þá gerði ég þetta þannig, fór alltaf niður þannig að lærinn, kviður og brjóst (og nef) snerti gólfið wink

Nr. 17 | posted by: anna | 2.02.2010 | 12:12:51 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web