www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sugar and Spice smákökur
Þriðjudagur, 10. nóvember 2009

IMG_5636.png


3/4 bolli (175 gr) smjörlíki smjör
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli sykur

1 egg
1/4 bolli (90 gr) síróp

2 bollar hveiti
1 tsk kanill
3/4 tsk negull
3/4 tsk engifer
2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt

1. Hita ofninn í 190°
2. Blanda saman í skál öllum þurru efnunum, nema sykrinum og látið til hliðar
3. Setjið smjörlíkið í hrærivélaskál og hrærið í 2 mínútur til að mýkja. Bætið púðursykrinum úti og venjulega sykrinum og hrærið saman í ca 3 mín, þangað til deigið er létt og fluffy. Bæta við egginu og sírópinu, hrærið saman í ca 30 sek.
4. Bætið við þurru efnunum og hrærið stutt, þangað til allt hefur blandast saman.
5. Búið til litlar kúlur úr ca 2 tsk af deigi og raðið á plötu.
6. Bakið í ca 6-8 mín
7. Þegar kökurnar hafa kólnað, sigtið flórsykur yfir.


| anna | 18:46 |
comments

Verða þessar harðar eða haldast þær mjúkar? Líta vel út smile

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 11.11.2009 | 10:55:03 | [+] |

Þær eru harðar að utan en chewy að innan. Má ekki baka þær of mikið, annars verða þær bara harðar smile

Nr. 2 | posted by: anna | 11.11.2009 | 11:03:02 | [+] |

Vá hvað ég ætla að prófa þessar smile

Nr. 3 | posted by: ósk Gunnlaugsdottir | 11.11.2009 | 13:46:06 | [+] |

Vá hvað ég ætla að prófa þessar smile

Það var harðar að utan chewy að innan sem seldi mér þær og svo auðvitað girnimyndin. happy

Nr. 4 | posted by: ósk Gunnlaugsdottir | 11.11.2009 | 13:47:12 | [+] |

Þessar eru girnilegar mmmm....... hlakka til að prufa. Takk fyrir að setja þetta hér á alnetið. Seldir þetta alveg með þessari girnilegu mynd mmmm......

Nr. 5 | posted by: Syngibjörg | 16.11.2009 | 22:38:38 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web