www.anna.is
ravings of a lunatic í nóvember 2009
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Smile
Fimmtudagur, 05. nóvember 2009


| anna | 10:35 | permalink | comments (2) | send to facebook |
The sun and the moon
Fimmtudagur, 05. nóvember 2009

Byrjuðum á að fara í Hallgrímskirkjuturn og skoða Reykjavík.
Veðrið var æðislegt.

Næst fórum við útá Gróttu.

Á hægri hönd var sólin að setjast og á vinstri hönd var tunglið á lofti.


| anna | 12:16 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Sugar and Spice smákökur
Þriðjudagur, 10. nóvember 2009

IMG_5636.png


3/4 bolli (175 gr) smjörlíki smjör
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli sykur

1 egg
1/4 bolli (90 gr) síróp

2 bollar hveiti
1 tsk kanill
3/4 tsk negull
3/4 tsk engifer
2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt

1. Hita ofninn í 190°
2. Blanda saman í skál öllum þurru efnunum, nema sykrinum og látið til hliðar
3. Setjið smjörlíkið í hrærivélaskál og hrærið í 2 mínútur til að mýkja. Bætið púðursykrinum úti og venjulega sykrinum og hrærið saman í ca 3 mín, þangað til deigið er létt og fluffy. Bæta við egginu og sírópinu, hrærið saman í ca 30 sek.
4. Bætið við þurru efnunum og hrærið stutt, þangað til allt hefur blandast saman.
5. Búið til litlar kúlur úr ca 2 tsk af deigi og raðið á plötu.
6. Bakið í ca 6-8 mín
7. Þegar kökurnar hafa kólnað, sigtið flórsykur yfir.


| anna | 18:46 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Blúskvöld Marel 2009
Mánudagur, 16. nóvember 2009

Það var biluð stemming á árlegu blúskvöldi Marel síðasta föstudag. Nú er kominn hljóðmaður, stærra svið og meiri reynsla og bara.. vá hvað þetta var gaman!

Það stigu svo margir talentar á svið að maður fór bara hjá sér. Ég er ekkert smá stolt að fá að taka þátt í þessu.

Smá sögulegur fyrirlestur um blús áður en bandið fór að spila:

IMG_6658.png

Halli í brjáluðum fíling:

IMG_6634.png

Miss Celie's blues:

Halli á gítar og Brynjar á bassa:


Bandið í massa stuði, Haukur að syngja:


| anna | 20:14 | permalink | comments (3) | send to facebook |
FlashForward
Mánudagur, 16. nóvember 2009

Horfði á þátt í þessari seríu í kvöld, mjög sennilega eina þáttinn sem ég mun sjá af þessu þar sem ég er haugur þegar kemur að því að fylgjast með einhverju sem er í sjónvarpinu. Ég er ekki góð í að setjast niður á sama tíma í hverri viku til að horfa á sjónvarp. Þetta hefur komið fram áður.

En ég velti fyrir mér, hvað myndi ég sjá ef ég mætti velja sjálf hvaða framtíð ég á - eftir hálft ár. Eitt ár. Tvö ár.

Svarið við spurningunni kom mér á óvart.


| anna | 23:52 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Stórmerkilegt
Þriðjudagur, 17. nóvember 2009

Mér finnst lífið stundum svo fyndið. Ég er búin að vera eitthvað off undanfarið og ég hef ekki getað áttað mig á af hverju. En.. það var eitthvað.

Í gærkvöldi lá ég uppí sófa hjá hóstandi syni mínum, sem er búinn að liggja veikur í tæpar tvær vikur núna, og ég fattaði allavega eitt sem ég dett í að gera, ómeðvitað, sem er ekki gott fyrir mig. Bara að átta sig á þessu varð til þess að mér leið betur.

Svo er líka annað, og þetta er mjög furðulegt. Það er komið hljómborð inní stofu. Ég spila ekki á þetta sjálf, börnin eru að glamra á þetta annað slagið - og það er sennilega engin lógísk skýring, en bara að hafa þetta hljómborð uppá stofuborði veitir mér mikla ánægju.

hljombord.png

..kannski veitir mér ánægju að hafa hljómborð hérna vegna þess að ég veit að einn daginn, þegar ég er búin að gera allt sem ég þarf að gera og hef time to spare, mun ég sjálf byrja að glamra.

Veit um allavega eitt lag sem mig langar að pikka upp.


| anna | 17:31 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Gyðingakökur
Þriðjudagur, 17. nóvember 2009

gydingakokur.png

175 gr hveiti
100 gr smjörlíki smjör
1/4 tsk hjartasalt
60 gr sykur
1 egg

saxaðar möndlur
perlusykur
lítið egg

Öll þurrefnin eru sett í skál og mjúku smjörlíkinu bætt saman við. Hnoðað saman í vél, svo er egginu bætt útí og hnoðað þangað til deigið er tilbúið.

Deigið er flatt út fremur þunnt (kökurnar á myndinni hefðu mátt vera þynnri). Kökurnar mótaðar og settar á plötu.

Perlusykrinum er blandað saman við saxaðar möndlur. Lítið egg er slegið í sundur og smá sletta af eggi er sett í miðjuna á hverri köku. Í eggjaslettuna er svo sett smávegis af sykri og möndlum.

Bakað við 200° í ca 5-7 mín.

Engin gyðingur var notaður í baksturinn.


| anna | 19:47 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Fyrir svefninn
Fimmtudagur, 19. nóvember 2009

Anna liggur í sófanum hjá litla veika Dodda, Frasier í sjónvarpinu. Roz er í álfabúningi að fara að vinna í sjálfboðavinnu sem santa's helper...

Doddi: Ég held að ég hafi fattað að jólasveinninn var ekki til þegar ég fattaði að þú varst tannálfurinn.
Anna: nú
Doddi: Já, þá varstu búin að gleyma að taka tönnina undan koddanum og setja pening í þrjá daga
Anna (fer að skellihlæja)
Doddi: og svo komstu á fjórða degi til mín þegar ég var búin að skammast yfir tannálfinum og sagði mér að kíkja undir koddann núna...
Anna: wahahahahahaha
Doddi: ..og sagðir "tannálfurinn getur líka komið á daginn" - yeah right (doddi fer að hlæja)

Anna: hahaha já og mannstu þegar ég kippti tönninni úr sem var svo ekki nógu laus og þú varst allur útí blóði og brjálaður útí mig?

Anna og Doddi hlæja og hlæja og hlæja

Doddi:: hahahahaha nei, I must have blocked it out

Hérna missti ég mig úr hlátri..


Á heilanum
Fimmtudagur, 19. nóvember 2009

Þetta lag, í þessari útgáfu.


| anna | 17:08 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Upprisuhátíð
Föstudagur, 20. nóvember 2009

Þegar ég kom heim rétt áðan tilkynnti ég svínapestargemlingnum að í kvöld verður haldin sérstök upprisuhátíð honum til heiðurs - þar sem hann þarf annaðhvort að rísa úr rekkju, eða.. já nei, það er engin annar valkostur í boði.

Ég ætla að elda lamb og það verður stórkostlegt Doddi! There's going to be flutes playing and trombones and flowers and garlands of.. fresh herbs. And we will dance till the sun rises. And then we will form a family band. And we will tour the countryside. AND THE SWINE FLU WON'T BE INVITED!


| anna | 14:20 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Hvað er hún með í hinni höndinni?
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009

hinhondin.png


| anna | 23:48 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Finnur deLúx
Föstudagur, 27. nóvember 2009

Jólin komu snemma í ár hjá fjölskyldunni á Hagamel 53, nánar tiltekið: síðasta mánudag.

Vinur minn hafði samband uppúr þurru og spurði hvort mig vantaði ekki sjónvarp - jú það passar, mig vantar svoleiðis! Næst spurði hann hvort ég hefði áhuga á að skipta út sjónvarpinu sem ég fékk gefins fyrir 4 árum síðan og fá 28" wide screen túbusjónvarp. Ég trúði þessu varla, ég hef nefnilega verið að hugsa unfanfarið að ég yrði að fara að gera eitthvað í sjónvarpsmálum, en nýtt sjónvarp er hinsvegar ekki á fjárhagsáætlun fjölskyldunnar alveg strax.

Gamla sjónvarpið hefur þjónað okkur vel og okkur þykir öllum vænt um það. Það heitir Phillips og er komið af léttasta skeiði - ekki að það hafi nokkurtíma verið létt.

Undir það síðasta voru myndgæðin orðin dúbíus. Liturinn var e.k. sepia, nema til hliðanna, þar var hann grænleitur og það var nánast ekkert contrast á myndinni svo stundum þurfti maður að hafa sig allan við til að sjá hvað var að gerast á skjánum. Skemmtilegast fannst mér hvað það tók sér langan tíma að hrökkva í gang. Oftar en einu sinni tilkynnti Doddi hátt og snjallt úr stofunni: "WE HAVE A VISUAL" - korteri eftir að hann hafði kveikt á tækinu.

Það fylgdi engin fjarstýring með gamla sjónvarpinu, en það kom ekki að sök þar sem við horfum ekki á neina sjónvarpsdagskrá og þurfum því aldrei að skipta um stöð. Við sjáum aldrei auglýsingar í sjónvarpi. Þú veist ekki hvað það er dásamlegt fyrr en þú prufar.

Hann varaði mig við, sagði að stundum fer þetta sjónvarp að skipta um stöðvar og hljóðið á til að hækka og lækka uppúr þurru. Ég sagði honum að það skipti engu máli, þetta væri alveg massa upgrade fyrir okkur þrátt fyrir þessa krankleika. Og sjónvarpið fór á smá stöðvaflakk á meðan við vorum að tengja tækið, en síðan það var tengt hefur það verið eins og hvers manns hugljúfi og gert nákvæmlega það sem það á að gera.

Við erum svo hamingjusöm!

Eins og sjá má er Frasier bara nokkuð sáttur á nýja staðnum:

finluxfrasier.png


| anna | 21:41 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Boring
Föstudagur, 27. nóvember 2009

Ég var að ná í smjörið úr ísskápnum áðan - og hlusta á þátt af Boston Legal í sjónvarpinu, þegar ég áttaði mig á því að ég er sennilega boring karakter. Alan Shore var að tjá sig þegar ég fattaði þetta.

Ég er happy go lucky. Ég á erfitt með að fela hvernig mér líður og langar ekki til þess. Ég verð aldrei mysterious eða spennandi á þann hátt. Ég á mér alvarlegri hlið en ég sporta henni ekki oft, helst í vinnunni.

Annars hlýtur eitthvað að hafa komið fyri mig, held jafnvel að ég hafi týnt mojo-inu mínu. Það tók mig t.d. næstum heila viku að skrifa síðustu færslu. Það er ekki líkt mér.

Svo er ég með ljótuna líka og með hverjum degi stigmagnast hún. Hélt að það myndi eitthvað batna við að setja mynd af mér, þar sem ég lít vel út, fyrir framan mig en það hefur ekkert hjálpað.

Núna er ég depressed OG með ljótuna.


| anna | 22:20 | permalink | comments (4) | send to facebook |

ravings í nóvember 2009
monthly archive

links
blogs
links - web