Þriðjudagur, 20. október 2009
Ég sá frétt um daginn þar sem kom fram að eftir einhverja tugi ára verður til tækni sem gerir fólki kleyft að verða jafnvel eilíft. Önnur frétt í mogganum í dag segir að 100 ára gamlir einstaklingar geta verið í jafn góðu formi og fimmtugir einstaklingar eftir einhver ár.
Ef tæknin gerir okkur kleyft að verða eilíf (nema einhver taki sig til og sprengi þig í loft upp), þá hugsa ég að á endanum munu verða til mennskir guðir, sem er þá venjulegt fólk sem er búið að láta lappa uppá sig þannig að það drepst ekki. Breytan sem ræður til um hver verður guð og hver ekki, er peningar.
Ég verð að viðurkenna að ég er eiginlega svolítið fegin að vita ég muni sennilega ekki lifa til að sjá hvernig þetta spilast út. Auk þess langar mig ekki að lifa að eilífu.