www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Not so annoyed
Mánudagur, 05. október 2009

Þegar klukkan var hálf ellefu sagði hann "You get annoyed a lot, don't you".

Merkilegt. Ég upplifi mig mig ekki mjög pirraða dags daglega, en ef það er eitthvað að marka hvað ég sagði í dag, þá er ég ein massa pirruð kona! Ég fór að hlæja þegar hann sagði þetta, líka vegna þess að hann var þannig á svipinn. Og það er rétt. Þegar kemur að sumum beisik hlutum er ég MJÖG pirruð. Það er hinsvegar fáránlega auðvelt að af-pirra mig. Sennilega of auðvelt.

Ég er steikt eftir þennan dag. Það er svo mikið sem er AÐ og þarf að laga. Mér finnst allt vera crap því ég finn ekki út hvernig ég vil gera þetta. Og það pirrar mig mikið.

Við tókum okkur break og fórum á hamborgarabúllu sem heitir Sharks. Töluðum saman um allan andskotann - allt annað en vinnuna. Á leiðinni til baka spurði hann mig hvort ég myndi ekki enda í pólitík. Ég sagði nei. Sagði honum að ég hef ekki trú á pólitík. Eftir að hafa hugsað málið aðeins sagði hann að sennilega nota ég meira abstrakt leiðir til að hafa áhrif. Kannski er það þannig.

Ég hlakka svo til að sjá hvaða morgunmatur verður í körfunni sem þau skilja eftir fyrir framan herbergishurðina mína á morgun. Mér finnst þetta æðislegt fyrirkomulag. Þetta er eins og.. ja.. eiginlega eins og í ævintýri.

Note to self: það er nauðsynlegt að hafa með sér sléttujárn í svona ferðir.


| anna | 23:03 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web