Þriðjudagur, 20. október 2009
Árið 2007 var í tísku að gefa geit í jólagjöf. Minnir að þú hafir geta keypt gjafabréf frá Rauðakrossinum, þú gast valið nafn á geitina og fjölskylda einhversstaðar í Afríku fékk geit í búið. Þetta var í senn fyndið fyrir fólk sem átti allt, og góðverk fyrir fólk sem á nánast ekkert.
Er jólagjöfin í ár ekki gjafabréf, ávísun á varphænu.
Fyrir venjulegar, skuldsettar, íslenskar fjölskyldur.