Föstudagur, 25. september 2009
"Ég er búinn að vera að hugsa um þetta. Eins fáránlega og það hljómar er eina skýringin sem mér dettur í hug að það hvíli hreinlega bölvun á þér Anna. Þú hefur svo marga góða kosti. Þetta er komið langt útfyrir óheppni og ef ég þekkti þig ekki frekar vel myndi ég einfaldlega ekki trúa þessu."
Hann er hagfræðingur. Við vitum bæði að hann trúir ekki á bölvanir frekar en ég.
Af hverju ætli orðið "hetja" sé kvenkyns. Hvers kyns er það í öðrum tungumálum? Er það ekki kvenkyns í ensku?
Mér finnst þetta fallegt orð. Í þeirri merkingu sem ég legg í það.
Eru til fleiri orð sem eru kvenkyns, jákvæð/sterk og notuð yfir bæði kynin?