www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Varúð!
Mánudagur, 07. september 2009

Eins og blasir við var ég að koma heim úr fríi. Áður en ég fór í fríið fór ég með bílinn á verkstæði til að láta gera við spindilkúlu að framan, fékk hann til baka í dag og búið að skoða hann og alles. Vá hvað ég kann að meta svona þjónustu, hélt að ég þyrfti að fara með hann aftur í skoðun - ég er náttúrlega ennþá að ná mér eftir að hafa fengið endurskoðun á ZGerman, gott að þeir bjóða uppá áfallahjálp þarna þar sem ég fór með bílinn í skoðun.

Í fríinu náði ég að kúpla mig algjörlega útúr öllu daglegu amstri. Var auðvitað með samviskubit yfir að skilja krakkana eftir ein heima en eins og fyrrverandi maðurinn minn benti mér á er eldra barnið mitt að verða sautján ára og hitt ellefu, svo það er ekki eins og þetta séu einhverjir hvítvoðungar. Ég hringdi samt í þau til að tékka á stöðunni þangað til þau fóru til pabba síns um helgina. Fyrrverandi maðurinn minn á einmitt skemmtilegustu afmæliskveðjuna sem ég fékk í ár:

"Hey! Til hamingju með dómsdaginn. Og þótt árin séu farin að færast yfir þá er alltaf huggun harmi gegn að þú ert í miklu betra formi en afmælisbróðir þinn hann Michael Jackson."

Hann hefur alltaf kunnað að láta mig fara að hlæja.
(Í myndinni Terminator er dómsdagur 29 ágúst)

Þessi ferð er eftirminnileg fyrir margar sakir. Opnaði augu mín, má segja. Ég hafði t.d. ekki hugmynd um að Íslenska sauðkindin væri að plana að útrýma mannkyninu. Það sem ég hélt að væru rollur með lömb að bíta gras í fjöllunum eru nothing of the sort! Þetta eru strategic military formations og svo sáum við special forces killer sheep sem voru í dulbúningi, litu út eins og stórir steinar. Þessar svörtu eru ninja assasin killer sheep, við vorum í stöðugri lífshættu þarna - en mér finnst gaman að lifa á brúninni og hann veit það. Það er einmitt vegna þess að mér finnst gaman að lifa á brúninni sem ég fór út sundbolnum í sundlauginni seint þetta kvöld í tunglskini. Að synda nakin er eitthvað sem allir ættu að prufa, en það er minna neyðarlegt ef enginn er á staðnum annar en þú. Stefndi í disaster þegar ungi franski þjónninn stakk sér allt í einu útí laugina og við of upptekin við að.. synda. Það reddaðist þar sem það var bæði dimmt og gufa yfir öllu vatninu. Og ef ekki.. who cares. Hann er franskur. Rollurnar ná honum.

Við keyrðum eins langt í norður og hægt var að komast - að enda hins byggilega heims. Á síðustu metrunum fundum við þetta skilti.

varud-ond.jpg

Þegar við keyrðum framhjá:

Hún: hahahaha priceless! Það stóð "varúð önd" á þessu skilti.
Hann: ha?
Hún: já, það stóð "varúð önd"
Hann: það getur ekki verið, er ekki líklegra að þetta hafi verið "varúð börn" eða "varúð.. "

Þegar við komu að bænum, þar sem vegurinn endaði, fundum við annað skilti:

Ég fór að skellihlæja og varð að fara útúr bílnum að taka mynd. Á leiðinni til baka tók ég mynd af "varúð önd" skiltinu líka og mér er sama hvað skiltið á að þýða, þetta hitti í mark hjá mér. Kannski býr geðill önd í kassanum sem er þarna á staurnum - anskotinn að hafa ekki tékkað.

Ég er líka með smá móral yfir hvað við skrifuðum í gestabókina í bústaðnum sem hann leigði. Það var ekki alveg satt. En okkur fannst það fyndið.

Hann hefur velt fyrir sér að búa með mér. Sagði að hann hefur hugsað um hvað það verður mikið vesen að flytja mig ofan af fjórðu hæð í lyftulausu húsi með öll þessi þungu húsgögn. Ég hef engar áhyggjur af því, mér finnst meira áhyggjuefni að hann sé strax farinn að pæla í hvað þetta verður erfitt allt saman. Flutningar eru temporary, ef hann talar mig inná sambúð gæti það verið for life.

Mér finnst ekkert skemmtilegt að flytja og myndi ekki gera svoleiðis nema ég sæi framá að það sé for keeps. Sem er að stórum hluta undir honum komið.

Hvað húsgögnin varðar þá verður þeim hent niður af svölunum ef ég ákveð að flytja einhvertíma. Hvað annað?


| anna | 21:03 |
comments

hahaha, þessi skilti eru púra snilld :D

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 9.09.2009 | 9:02:49 | [+] |

Enginn franskur kokkur á sprellanum semsagt? Bara þjónn?

Nr. 2 | posted by: Eva | 13.09.2009 | 19:10:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web