www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Yndislegt frí
Mánudagur, 07. september 2009

Pottarnir á Drangsnesi voru æðislegir, gjörsamlega æðislegir. Við fórum í sundlaugina að þvo okkur og skipta um föt, mjög góð aðstaða þar, og flatmöguðum svo þarna við aðalgötuna heillengi. Ég hefði getað legið þarna allan daginn. Þegar við vorum að fara kom heimafólk í sloppum og slippers arkandi til að liggja í leti í pottunum. Algjör snilld.

Veiðileysufjörður, ofboðslega fallegur staður.

Killer sheep charging.

Rétt áður en við komum að Gjögri tókum við þessa mynd í Reykjarfirði. Fallegt þarna.

IMG_4595-1.jpg

Þessi mynd er tekin á hótelinu.


| anna | 17:30 |
comments

Ísland geymir fjársjóði.

Hafa myndirnar einhverja sérstaka þýðingu?

Nr. 1 | posted by: Outlaw | 7.09.2009 | 18:25:53 | [+] |

Ég setti bara inn nokkrar myndir sem mér fannst góðar. Er að velta fyrir mér hversu mikið ég á að skrifa um þessa ferð - eða hvort ég á að láta myndir og caption við þær duga.

Nr. 2 | posted by: anna | 7.09.2009 | 18:29:03 | [+] |

Þær eru mjög flottar, og það er ekki annað hægt en að öfunda þá sem hafa svona aðgang að náttúru.

Tónlist gefur myndunum blæbrigði.

Nr. 3 | posted by: Outlaw | 7.09.2009 | 18:32:23 | [+] |

Já en það er ekki nóg að vera á Íslandi, þú þarft að hafa aðgang að jeppa, þú ferð ekki þangað sem við fórum á venjulegum bíl.

En vá hvað mér fannst þetta æðislegt. Kúplaði mig algjörlega útúr öllu og naut þess að upplifa Ísland - eða hluta af því.

Tónlist já.. þú segir nokkuð smile

Nr. 4 | posted by: anna | 7.09.2009 | 18:36:28 | [+] |

Af hverju ætli fólk sækist ekki lengur eftir því að búa í svona umhverfi?

Eiginlega eru það myndirnar sem gera eitthvað við tónlistina. Otis hljómar öðruvísi nú en fyrr í dag. wink

Nr. 5 | posted by: Outlaw | 7.09.2009 | 18:48:57 | [+] |

Tjah.. við fórum eins langt og hægt er að keyra þarna á Vestfjörðum og þetta er orðið helv remote. Of remote fyrir mig allavega.

Þetta lag er töff - eins og myndin wink

Nr. 6 | posted by: anna | 7.09.2009 | 19:25:16 | [+] |

Kúrekahattur og malbik eiga ekki alveg samleið.

Og þó.

Nr. 7 | posted by: Outlaw | 7.09.2009 | 19:42:44 | [+] |

Það er algjörlega undir því komið hver er með hattinn.

Sumir eru bara með þetta wink

Nr. 8 | posted by: anna | 7.09.2009 | 19:43:56 | [+] |

Þú 'klikkaðir ekki'. toungue

Nr. 9 | posted by: Outlaw | 7.09.2009 | 20:00:38 | [+] |

lol

Nr. 10 | posted by: anna | 7.09.2009 | 20:02:20 | [+] |

Mmmm þið hafið semsagt farið á Strandirnar. Uppáhaldsstaðurinn minn á landinu, enda ættuð þaðan til hálfs. Þið hafið pottþétt líka keyrt framhjá húsinu sem langafi minn og langamma byggðu og mamma mín ólst upp í. smile

Nr. 11 | posted by: Jóhanna | 7.09.2009 | 21:32:33 | [+] |

Við fórum í Djúpið og á Strandirnar já, alveg ofboðslega fallegt og allt morandi í bláberjum! smile

Nr. 12 | posted by: anna | 7.09.2009 | 21:37:18 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web