www.anna.is
ravings of a lunatic í september 2009
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Síðustu gestirnir
Laugardagur, 05. september 2009

Við erum á stóru hóteli. Eigandinn er að pakka niður, hann er að hætta. Við erum síðustu gestirnir.

Við, enskumælandi þjónninn og eigandinn erum ein í öllu þessu flæmi.

Horrormovies are made from this.


| anna | 10:18 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Blueberry heaven
Mánudagur, 07. september 2009

IMG_4319.jpg

IMG_4322-460.jpg

IMG_4320.jpg

IMG_4197.jpg

IMG_4241.jpg


Yndislegt frí
Mánudagur, 07. september 2009

Pottarnir á Drangsnesi voru æðislegir, gjörsamlega æðislegir. Við fórum í sundlaugina að þvo okkur og skipta um föt, mjög góð aðstaða þar, og flatmöguðum svo þarna við aðalgötuna heillengi. Ég hefði getað legið þarna allan daginn. Þegar við vorum að fara kom heimafólk í sloppum og slippers arkandi til að liggja í leti í pottunum. Algjör snilld.

Veiðileysufjörður, ofboðslega fallegur staður.

Killer sheep charging.

Rétt áður en við komum að Gjögri tókum við þessa mynd í Reykjarfirði. Fallegt þarna.

IMG_4595-1.jpg

Þessi mynd er tekin á hótelinu.


Varúð!
Mánudagur, 07. september 2009

Eins og blasir við var ég að koma heim úr fríi. Áður en ég fór í fríið fór ég með bílinn á verkstæði til að láta gera við spindilkúlu að framan, fékk hann til baka í dag og búið að skoða hann og alles. Vá hvað ég kann að meta svona þjónustu, hélt að ég þyrfti að fara með hann aftur í skoðun - ég er náttúrlega ennþá að ná mér eftir að hafa fengið endurskoðun á ZGerman, gott að þeir bjóða uppá áfallahjálp þarna þar sem ég fór með bílinn í skoðun.

Í fríinu náði ég að kúpla mig algjörlega útúr öllu daglegu amstri. Var auðvitað með samviskubit yfir að skilja krakkana eftir ein heima en eins og fyrrverandi maðurinn minn benti mér á er eldra barnið mitt að verða sautján ára og hitt ellefu, svo það er ekki eins og þetta séu einhverjir hvítvoðungar. Ég hringdi samt í þau til að tékka á stöðunni þangað til þau fóru til pabba síns um helgina. Fyrrverandi maðurinn minn á einmitt skemmtilegustu afmæliskveðjuna sem ég fékk í ár:

"Hey! Til hamingju með dómsdaginn. Og þótt árin séu farin að færast yfir þá er alltaf huggun harmi gegn að þú ert í miklu betra formi en afmælisbróðir þinn hann Michael Jackson."

Hann hefur alltaf kunnað að láta mig fara að hlæja.
(Í myndinni Terminator er dómsdagur 29 ágúst)

Þessi ferð er eftirminnileg fyrir margar sakir. Opnaði augu mín, má segja. Ég hafði t.d. ekki hugmynd um að Íslenska sauðkindin væri að plana að útrýma mannkyninu. Það sem ég hélt að væru rollur með lömb að bíta gras í fjöllunum eru nothing of the sort! Þetta eru strategic military formations og svo sáum við special forces killer sheep sem voru í dulbúningi, litu út eins og stórir steinar. Þessar svörtu eru ninja assasin killer sheep, við vorum í stöðugri lífshættu þarna - en mér finnst gaman að lifa á brúninni og hann veit það. Það er einmitt vegna þess að mér finnst gaman að lifa á brúninni sem ég fór út sundbolnum í sundlauginni seint þetta kvöld í tunglskini. Að synda nakin er eitthvað sem allir ættu að prufa, en það er minna neyðarlegt ef enginn er á staðnum annar en þú. Stefndi í disaster þegar ungi franski þjónninn stakk sér allt í einu útí laugina og við of upptekin við að.. synda. Það reddaðist þar sem það var bæði dimmt og gufa yfir öllu vatninu. Og ef ekki.. who cares. Hann er franskur. Rollurnar ná honum.

Við keyrðum eins langt í norður og hægt var að komast - að enda hins byggilega heims. Á síðustu metrunum fundum við þetta skilti.

varud-ond.jpg

Þegar við keyrðum framhjá:

Hún: hahahaha priceless! Það stóð "varúð önd" á þessu skilti.
Hann: ha?
Hún: já, það stóð "varúð önd"
Hann: það getur ekki verið, er ekki líklegra að þetta hafi verið "varúð börn" eða "varúð.. "

Þegar við komu að bænum, þar sem vegurinn endaði, fundum við annað skilti:

Ég fór að skellihlæja og varð að fara útúr bílnum að taka mynd. Á leiðinni til baka tók ég mynd af "varúð önd" skiltinu líka og mér er sama hvað skiltið á að þýða, þetta hitti í mark hjá mér. Kannski býr geðill önd í kassanum sem er þarna á staurnum - anskotinn að hafa ekki tékkað.

Ég er líka með smá móral yfir hvað við skrifuðum í gestabókina í bústaðnum sem hann leigði. Það var ekki alveg satt. En okkur fannst það fyndið.

Hann hefur velt fyrir sér að búa með mér. Sagði að hann hefur hugsað um hvað það verður mikið vesen að flytja mig ofan af fjórðu hæð í lyftulausu húsi með öll þessi þungu húsgögn. Ég hef engar áhyggjur af því, mér finnst meira áhyggjuefni að hann sé strax farinn að pæla í hvað þetta verður erfitt allt saman. Flutningar eru temporary, ef hann talar mig inná sambúð gæti það verið for life.

Mér finnst ekkert skemmtilegt að flytja og myndi ekki gera svoleiðis nema ég sæi framá að það sé for keeps. Sem er að stórum hluta undir honum komið.

Hvað húsgögnin varðar þá verður þeim hent niður af svölunum ef ég ákveð að flytja einhvertíma. Hvað annað?


| anna | 21:03 | permalink | comments (2) | send to facebook |
September
Laugardagur, 12. september 2009

superwomansept-template.png

Nýjustu tölur bera þess merki að ég er ekki búin að vera nógu dugleg þó það séu einhverjir sentmetrar farnir, enda er ég búin að vera mjög löt að hreyfa mig undanfarið. Auðvitað er ég búin að hreyfa mig eitthvað í fríinu en ekkert markvisst og eftir að ég fór að vinna hætti ég að fara í ræktina.

Það gengur náttúrlega ekki.

Markmiðið var að koma hreyfingu í rútínu hjá mér svo það er verkefni næstu mánaða. Tíminn bókstaflega flýgur þessa dagana.


| anna | 19:15 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Varstu að drekka?
Þriðjudagur, 15. september 2009

Nú, þegar búið er að koma fyrir sótthreinsandi á öllum baðherbergjunum á vinnustöðum - þannig að allir lykta þeir hafi verið að þamba tannlæknaspíra þegar þeir koma af klósettinu, er rétti tíminn til að byrja að drekka í vinnunni. Og þó það væri ekki búið að koma fyrir sótthreinsandi inná öllum baðherbergjum væri þetta samt rétti tíminn til að vera alltaf smá kenndur, sama hvort maður er í vinnunni eða ekki.

Áfengi hreinsar út allskonar óværu og eins og allir vita (ég og tveir aðrir sem ég þekki) er rétta leiðin til að sleppa við niðurgangspestir í útlöndum að taka eitt skot af hard liquor kvölds og morgna.

Skál!


Ái
Sunnudagur, 20. september 2009

Það verður ekkert minna erfitt með árunum að vera ástfangin.


| anna | 23:56 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Real men
Mánudagur, 21. september 2009

xxx says: ég var spurður að því hvort þú værir að hitta alvöru mann eða fictional þessa dagana
Anna says: jæja, var það xxx?
xxx says: já, come clean woman
xxx says: hvað er að gerast
Anna says: já þetta er rétt, ég er að hitta mann
xxx says: og?
xxx says: er hann til í raunveruleikanum eða leiðist þér bara?
Anna says: mér leiðist
Anna says: it's a cronic thing
xxx says: svo hann er fiction?
Anna says: já hann er það
xxx says: ó ég hélt annað
Anna says: ekki trúa öllu sem þú lest - sérð - heyrir eða finnur
xxx says: no shit
Anna says: segðu honum að líkurnar á því að ég skrifi um raunverulegan mann á blogginu séu engar
xxx says: hehehe
Anna says: ég er ekki einu sinni viss um að menn séu raunverulega til
Anna says: hvað heldur þú?
xxx says: tjah
xxx says: það eru engar sannanir fyrir því svosem
Anna says: akkúrat


| anna | 17:52 | permalink | comments (7) | send to facebook |
Vinkonur og viðhald
Þriðjudagur, 22. september 2009

Í gær gaf góð vinkona mér stóran kassa fullan af gæða súkkulaði og uppháa, röndótta, handprjónaða nornasokka. Gladdi mig svo mikið. Það er ekki langt síðan ég var einmitt að tala um að mig langaði í svona sokka og rétti tíminn til að fá gefins fínt súkkulaði er alltaf "núna".

Það var svo gott að hitta góða vinkonu. Ég hef saknað hennar svo mikið.

Í dag hitti ég aðra góða vinkonu sem ég hef saknað líka.

Í kvöld stóð valið á milli þess að þrífa íbúðina eða sinna viðhaldi. Ég valdi viðhaldið.

Nú er ég hrein, falleg og ilmandi. Þessi orð er hinsvegar ekki hægt að nota til að lýsa heimilinu mínu akkúrat núna.

Það skiptir ekki máli, after all.. tomorrow is another day..


| anna | 23:38 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Stephen Hawking
Miðvikudagur, 23. september 2009

Í windows er eitthvað dót sem heitir "Narrator" sem les upp allar skipanir sem þú gerir með mjög mekkanískri rödd sem er illskiljanleg. Ég veit ekki hvað þarf að gera til að kalla þetta fram, en stundum bara byrjar vélin að röfla þetta. Ég bar þetta undir mann sem velti fyrir sér hvort tölvan sé að fylgjast með mér og ef henni sýnist ég wander aimlessly eins og ég sé blind setji hún þetta forrit í gang - til að hjálpa mér. Meina.. með windows, you need all the help you can get.

Nema í kvöld gerðist þetta í fyrsta skipti þegar börnin eru heima (og ég var einmitt að wandera aimlessly á netinu) og þegar upplesturinn hófst sagði frumburðurinn: er þetta Stephen Hawking?

Ég fór náttúrlega í massa hysteríu yfir því að Stephen Hawking sé kannski að reyna að segja mér eitthvað, en ég skil hann ekki!


Líklegasta skýringin
Föstudagur, 25. september 2009

"Ég er búinn að vera að hugsa um þetta. Eins fáránlega og það hljómar er eina skýringin sem mér dettur í hug að það hvíli hreinlega bölvun á þér Anna. Þú hefur svo marga góða kosti. Þetta er komið langt útfyrir óheppni og ef ég þekkti þig ekki frekar vel myndi ég einfaldlega ekki trúa þessu."

Hann er hagfræðingur. Við vitum bæði að hann trúir ekki á bölvanir frekar en ég.

Af hverju ætli orðið "hetja" sé kvenkyns. Hvers kyns er það í öðrum tungumálum? Er það ekki kvenkyns í ensku?

Mér finnst þetta fallegt orð. Í þeirri merkingu sem ég legg í það.

Eru til fleiri orð sem eru kvenkyns, jákvæð/sterk og notuð yfir bæði kynin?


| anna | 12:42 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Jarðarför
Föstudagur, 25. september 2009

Nei ert þetta þú, oh, mikið er gott að sjá þig. Þú lítur svo vel út, sagði gamla konan og tók utanum mig. Ég var svo fegin að hún tók mér svona vel. Mér finnst ég ekki eiga það skilið, ætti að vera löngu búin að heimsækja hana eins og ég hef ætlað að gera lengi.

Ég lít ekkert vel út. Ég grét mikið í kirkjunni og mér líður ekki vel. En mér fannst samt svo gott að heyra hana segja þetta og ég fann að ég var að beygja af, en ég reyndi að fela það og hún sá það ekki... Elsku Anna mín. Það hefur margt breyst síðan við hittumst síðast. Lífið er svo grimmt. Finnst þér það ekki.. ...þarna varð það augljóst.

Jú, mér finnst lífið grimmt. En lífið hefur ekki verið jafn grimmt við mig og marga aðra.
Með þessum orðum hefst undirbúningur fyrir lotu 38 í stóra pollýönnuleiknum. Ég er ekki alveg tilbúin til að fara í hringinn akkúrat núna.


| anna | 17:59 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Múrfata
Laugardagur, 26. september 2009

Í gærkvöldi kom Eva vinkona mín í heimsókn. Þetta var pre-planned, ég ætlaði að elda eitthvað hrikalega gott fyrir okkur. Þar sem ég var verulega illa fyrirkölluð spurði ég hvort henni væri sama þó ég myndi bjóða uppá grillaðan kjúkling úr Melabúðinni og franskar. Eva fór að hlæja og sagði að það skipti ekki máli þó ég myndi bjóða henni brauð með mysingi. Ég tók andköf, ég myndi ekki einu sinni bjóða útrásarvíkingi uppá brauð með mysingi. Það eru takmörk!

Einhvertíma um kvöldið spurði hún mig hvort hún mætti fara á netið til að tala við systur sína, vantaði pin númer fyrir kort. Það var sjálfsagt. Nema þegar hún var að tala við systur sína spurði ég hvort systur hennar vantaði nokkuð múrfötu.

Eva says: Heyrðu ég er í heimsókn hjá Önnu
Eva says: hún spyr hvort þig vanti múrfötu
Hulla says: ha?
Hulla says: Óóóóóóóóóó já! smile
Hulla says: er hún skyggn eða hvað?
Eva says: hún er bara norn
Hulla says: það hlaut að vera
Eva says: Hulla mín, hvað ætlar þú að gera við múrfötu?
Hulla says: mig bara vantar múrfötu!
Hulla says: pabbi hans Magga spyr hvort það er hægt að setja steypuhrærivél í gáminn
Hulla says: það má setja múrfötuna ofaní hana
Eva says: það er nóg pláss í gámnum

Eva hló og hló, fannst flippað að Hulla vildi fá þessa múrfötu. Mér finnst ekkert eðlilegra og skil loksins af hverju ég keypti hana in the first place. Þetta er massa flott múrfata -í alvöru.
---

Undanfarið hef ég fengið spurningar sem ég hef ekki fengið áður og svarið við þeim er alltaf það sama: "af því ég hef ekki efni á því". Ég er orðin svo vön að geta lítið gert, mér fannst það normal ástand. Allt í einu var komin rödd inní hausinn á mér sem sagði í sífellu: "your best isn't good enough".

Þetta er búið að draga mig svo niður. Það er ekki góð tilfinning að finnast maður vera svona.. inadequate.

En ég var ekki svona óánægð með mig áður. Ég var eiginlega bara mjög ánægð og fannst ég komin langt með það sem ég var að gera og ég er komin langt með það. Ég er með tvö börn á framfæri, samt er ég að kljúfa þetta ein. Þó það sé komin massa kreppa og allt sé dýrara sé ég meira að segja ennþá frammá að ná að klára, þó það sé óvenju erfitt akkúrat núna og ég þurfi að lifa á hrökkbrauði í smá tíma. Ég hef gert það áður, ég léttist bara! Where's the problem? Af hverju ekki að halda áfram að vera ánægð? Ég hef svo margt annað sem ég get verið þakklát fyrir og ánægð með. Ég var bara búin að gleyma því.

Áður en ég rétti Evu múrfötuna setti ég þessa rödd sem segir tóma steypu og er búin að rugla í mér undanfarið ofaní fötuna. Nú er múrfatan komin í gám og mun enda í danmörku. Vúhú!

Alveg fann ég á mér að það væri góð ástæða til að kaupa þessa fötu þegar ég gerði það. Það er bara svo oft sem hlutirnir fara öðruvísi en maður reiknar með í upphafi. Útkoman þarf ekki að vera neitt verri.

Og þessi rödd mun ekki lifa gáminn af.


| anna | 13:51 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Daim demolition
Laugardagur, 26. september 2009

Þegar mann vantar Daim kúlur í köku og þær eru ekki til.. þá tekur maður talíbanann á þetta.

IMG_5128.jpg


| anna | 14:46 | permalink | comments (1) | send to facebook |

ravings í september 2009
monthly archive

links
blogs
links - web