Mánudagur, 17. ágúst 2009
Hann: áttu lista yfir hvernig þú vilt að þetta sé?
Anna: ég get útbúið lista og sent þér á morgun
Hann: er.. er eitthvað að?
Anna: nei, af hverju?
Hann: þú ert ekki eins og þú ert venjulega, mér líður eins og ég sé að tala við.. e.k. þjónustu
Anna: hvernig þjónustu?
Hann: ég veit það ekki, vinalínu eða eitthvað, röddin þín er svo róandi og kynþokkafull
Anna: og er eitthvað sem ég get hjálpað þér með?
Hann: hlær
Anna: ég er sennilega bara þreytt
Hann: varstu að koma úr sumarfríi?
Anna: nei, bara illa sofin
Hann: ok
Anna: ég sendi þér skjalið á morgun
Hann: ok, á ég svo ekki að vera í bandi í kjölfarið?
Anna: hljómar vel
Hann: það er rosalega skrítið að tala við þig svona
Anna: já..
Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld, vonandi verður röddin mín hætt að vera róandi og kynþokkafull á morgun. Þetta gengur náttúrlega ekki svona..