Þriðjudagur, 25. ágúst 2009
Skólarnir byrjaðir og rútínan mætt. Þó svo ég sé búin að eiga yndislegt sumar þá finnst mér alltaf svolítið gott þegar rútínan kemur á haustin. Það verður skrítið þegar krakkarnir eru fluttir að heiman og þessi rútína sem fylgir skólagöngu barna fer.
Ég og maðurinn sem gerir mig bæði hamingjusama og skíthrædda fórum með frumburðinn í æfingaakstur í gærkvöldi. Mér finnst algjör snilld að maður megi æfa börnin sín í að keyra og mér fannst mjög gott að hafa hann með. Hann kenndi henni að hlusta á vélina þegar hún tekur af stað og með því náði hún þessu um leið - er ennþá að venjast bílnum (beinskiptur - ekki bimminn). Hún var líka látin bakka miskunnarlaust.
Hann er búinn að bjóða okkur í mat og bluray bíó heima hjá honum í vikunni.
Þeim líkar vel við hann, en þegar þau sjá að hann á nintendo wii er óvíst að ég nái þeim heim með mér aftur..