Mánudagur, 03. ágúst 2009
Ég var ekkert heima um helgina og mun taka næstu kvöld í að raða saman myndum og ferðasögu frá Vestfjörðum. Linka á það þegar ég er búin.
Þetta sumar er búið að vera æðislegt so far og ég hlakka til að fara í næstu göngu - sem ég hef grun um að verði ekkert svakalega langt í. Næsta sumar ætla ég að fara Laugaveginn og eitthvað fleira. Um helgina fór ég í bíl yfir slatta af sprænum og tvær ár (held ég) og var næstum búin að pissa í mig úr hræðslu. Mér er jafn illa við að fara yfir vatn á bíl og berfætt. Mér er ekkert rosalega vel við vatn - en - you gotta do what you gotta do.
Eyddi kvöldinu í að laga neglurnar á mér (sem eru í henglum eftir ferðirnar undanfarna daga), ganga frá, þvo fötin eftir ferðina, bera á skóna og undirbúa vinnuvikuna.
Mig langar í jeppa í fyrsta skipti á ævinni. Alvöru jeppa.
Hjarta úr steini á ströndinni::
