Föstudagur, 21. ágúst 2009
Ég er ekki búin að vera í neinu bloggstuði þessa dagana. Ég er of upptekin við að hugsa um krakkana, vinnuna, fjárhagsáætlunina út árið og manninn. Ekki í þessari röð.
Mér sýnist ég ætla að lifa af út árið fjárhagslega þó ég verði fram í desember að borga tannlækninum. Í næsta mánuði borga ég síðustu afborgun af LÍN láninu mínu, hallelúja - ég mun halda sérstaklega uppá það.
Ég á afmæli seinna í þessum mánuði. Á afmælisdaginn ætlar að koma hingað maður og grilla, sérstaklega fyrir mig og krakkana. Þó þau séu bara nýbúin að hitta hann líkar þeim báðum mjög vel við hann - eins og mér. Kannski giftist ég honum bara og lifi hamingjusöm til æviloka.
Það er búið að vera gaman í vinnunni undanfarið og ég spái því að það verði bara meira gaman eftir því sem líður á veturinn. Margt að gerast.
Ég fékk hugmynd í vinnunni í dag. Síðasta vor úthlutaði ég krökkunum sitthvorum deginum í viku (fengu að velja hvaða dag) þar sem þau bera ábyrgð á að elda mat fyrir fjölskylduna. Það er ekki vegna þess að ég nenni ekki að elda (eins og Dodda grunaði fyrst), það er vegna þess að ég trúi að það sé hollt og gott fyrir börn að læra hvernig matur er búinn til - auk þess sem þau verða þá ekki ósjálfbjarga í eldhúsinu þegar þau flytja að heiman. Nema mér datt í hug að taka þessa hugmynd aðeins lengra.
Ætla að hugsa það aðeins áður en ég blogga um það.
Sushi í kvöld..