Föstudagur, 28. ágúst 2009
Mikið er ég fegin að það er 28. ágúst en ekki 29. sem fær Icesave stimpilinn.
Mér þykir vænt um daginn sem ég fæddist. Það er góður dagur. Á morgun mun hann byrja með því að ég verð kysst og mér óskað til hamingju með afmælið. Því næst förum við útúr bænum í smá bíltúr. Á eftir er grill og svo massa póker tournament.
38 ára. Með fiðring í maganum.
Á þriðjudaginn er ég að fara útúr bænum. Kem aftur eftir sex daga.