www.anna.is
ravings of a lunatic í ágúst 2009
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Sveinstindur
Mánudagur, 03. ágúst 2009



| anna | 17:26 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Helgin
Mánudagur, 03. ágúst 2009

IMG_3519.jpg

IMG_3453.jpg

IMG_3530.jpg

IMG_3551-1.jpg


| anna | 19:02 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Fyrir svefninn
Mánudagur, 03. ágúst 2009

Ég var ekkert heima um helgina og mun taka næstu kvöld í að raða saman myndum og ferðasögu frá Vestfjörðum. Linka á það þegar ég er búin.

Þetta sumar er búið að vera æðislegt so far og ég hlakka til að fara í næstu göngu - sem ég hef grun um að verði ekkert svakalega langt í. Næsta sumar ætla ég að fara Laugaveginn og eitthvað fleira. Um helgina fór ég í bíl yfir slatta af sprænum og tvær ár (held ég) og var næstum búin að pissa í mig úr hræðslu. Mér er jafn illa við að fara yfir vatn á bíl og berfætt. Mér er ekkert rosalega vel við vatn - en - you gotta do what you gotta do.

Eyddi kvöldinu í að laga neglurnar á mér (sem eru í henglum eftir ferðirnar undanfarna daga), ganga frá, þvo fötin eftir ferðina, bera á skóna og undirbúa vinnuvikuna.

Mig langar í jeppa í fyrsta skipti á ævinni. Alvöru jeppa.

Hjarta úr steini á ströndinni::

hjartaisandinum.jpg


| anna | 23:18 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Made it, Ma! Top of the world!
Þriðjudagur, 04. ágúst 2009



| anna | 22:46 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Í skóginum
Miðvikudagur, 05. ágúst 2009

Ég veit ekki af hverju, en ég hreinlega elska þessa mynd af mér.

Ég er að hugsa um að láta stækka hana í plaggatastærð og hengja hana fyrir ofan sófann. Það er low key útgáfa af extreme sjálfhverfu hugmyndinni sem ég fékk um daginn þegar ég var að velta fyrir mér hvað ég á að hafa á þessum vegg (núna er gamalt plaggat úr drakúla mynd fyrir ofan sófann - bráðabirgða) þegar mér datt í hug að stækka einhverja mynd af sjálfri mér og hengja þarna. Mér finnst þetta ennþá fyndin hugmynd en hún er ekki gallalaus. Ég hef til dæmis engan áhuga á að hafa stóra mynd af sjálfri mér fyrir ofan sófann - þó mér fyndist það fyndið í nokkra daga.

Þessi mynd hinsvegar.

Kannski ekki fyrir ofan sófann, en þessi endar í ramma.


| anna | 14:45 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Alive
Miðvikudagur, 05. ágúst 2009

Þegar frumburðurinn kom heim í kvöld áður en hún fór í vinnuna sá hún mynd af mér sem var tekin um helgina og hrópaði "Ó MÆ GOD - ÞÚ ERT KENNY!"

IMG_5979-460.jpg

Mér finnst þetta priceless athugasemd.


| anna | 21:11 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Sound of music
Fimmtudagur, 06. ágúst 2009

Sá þetta hjá Pjattrófunum og verð hreinlega að birta þetta.

Mér finnst þetta alveg svakalega töff gjörningur.

Fannst líka gaman að lesa að svona svakalega upphá stígvél séu að komast í tísku.


| anna | 14:46 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Íslenska - ekki alltaf góð
Fimmtudagur, 06. ágúst 2009

Þó ég sé Íslendingur og tali íslensku fer íslenskt viðmót í hugbúnaði alveg óendanlega mikið í taugarnar á mér.

Var að fjarlægja Firefox á íslensku og hlaða honum aftur inn á ensku. Þetta gat alveg eins verið á kínversku eins og íslensku, ónothæft.


| anna | 16:59 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Karlmenn sem hata konur - taka tvö
Föstudagur, 07. ágúst 2009

Ég fór að sjá Karlmenn sem hata konur aftur í bíó í kvöld, nema í þetta skipti fór ég á klósettið í hléi og sat svo sallaróleg og horfði með athygli á restina af myndinni.

Mér leið eins og ég hefði farið aftur í tíma og leiðrétt stór mistök. Ó.. ef það væri nú alltaf hægt.

Þetta var með betri klósettferðum.

Auðvitað ætti ég nú að skrifa langt blogg þar sem ég lýsi í smáatriðum hvað ég gerði inná klósettinu og hversu dásamlegt það var, til heiðurs sænskum bókmenntum.... en ég nenni því ekki.

Ó.. ef það væri hægt að gera allt fullkomið eins og í kvöld - í töku tvö.


Eftir vinnu
Föstudagur, 07. ágúst 2009

Ef ég væri köttur hefði ég fundið mér einhvern hlýjan stað í morgun, kúrt þar og sofið. En ég er ekki köttur - nema á sunnudögum fyrir hádegi. Og stundum þegar ég er ekki ein í rúminu.

Í kvöld er ég að fara í ræktina með vinkonu minni. Við ætlum að endurtaka sama prógram og síðast, ræktin + gufa + gera okkur hrikalega flottar og fara út að borða niðrí bæ og hlæja jafn mikið og síðast þegar við gerðu þetta.

Ég held að þetta verði góð helgi, ég hlakka til.


| anna | 17:37 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Á öllum aldri
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009

Ég er byrjuð að prjóna peysu.

Þegar ég kom heim með prjónana fór ég strax að fitja upp, ótrúlegt að ég skuli ennþá muna hvernig það er gert síðan úr barnaskóla. Ég man hvernig á að fitja upp, prjóna slétt og brugðið en svo kann ég ekki meir. Þá er gott að kunna á google og finna leiðbeiningavídeó.

Einkasonurinn starði á mig þegar ég mundaði prjónana og sagði svo setningu sem mig langar að gera ódauðlega á Internetinu.

"Mamma.. þú ert ung kona.. af hverju ertu farin að gera svona old ladies things?"

(Hann er svo yndislegur.)

Það er vegna þess að mig vantar betri peysu til að fara í uppá fjöll. Og þig vantar þannig peysu líka.

"Nei, ég er búin að prufa að fara á fjöll og NEVER AGAIN! Það er HORRIBLE!"

Ég brosti og hélt áfram að gera "old ladies things"

"En.. ef þú myndir búa til pönnukökur.. og heitt kakó.. og samlokur með eggjum - þá er ég kannski til í að fara með þér"

Bæði í útilegu og uppá fjöll?

"Já ef þú býrð til eitthvað gott að borða"

Ég skal gera það.
--

Helgin var yndisleg eins og ég hafði reiknað með og ég hitti karlmann - sem er Íslendingur.

Og seint um kvöld í vikunni kom ég heim og frumburðurinn spurði: "Hvar hefur þú verið unga kona? Ha? Ekki reyna að halda því fram að þú hafir verið úti að hlaupa í.. FJÓRA KLUKKUTÍMA!"

"Ég sofnaði - hlaupandi. Vaknaði við álverið í Straumsvík."

Mér datt ekkert skárra svar í hug og hún fór að hlæja. Hún vissi alveg hvert ég fór.

Mér leið samt eins og ég væri sextán ára þegar hún sagði þetta.


| anna | 19:10 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Jeeeeeeeeeeeeehaaaa!
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009

Í kvöld tók ég þríþraut: hjólaði í 10 mín, hljóp án þess að stoppa í 30 mín og synti. Reyndar synti ég bara í 4 mín.

Fiskur og ferskt salat í kvöldmatinn.

Nú þarf ég hinsvegar að æfa mig á gítar fyrir svefninn þar sem ég er að fara að slá Íslandsmet í fjölda-gítarspili með fullt af fólki hjá Marel annað kvöld.

María, María, María, María, María, Maríaaaaaaaaaaa

Var að kíkja á Facebook og las statusinn hjá Agli Helga: "Mér var sagt að rababarasultur sem eru seldar sem íslenskar séu ekki búnar til úr íslenskum rababara. Og þá spyr ég, hvar fær maður rababara?" - og núna langar mig að búa til rabbabarasultu.

Mig langar líka að skríða uppí rúm, en ekkert endilega mitt eigið.


| anna | 22:57 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Reykjanes og rabbabarasulta
Sunnudagur, 16. ágúst 2009

IMG_3760.jpg


| anna | 23:30 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Samtal
Mánudagur, 17. ágúst 2009

Hann: áttu lista yfir hvernig þú vilt að þetta sé?
Anna: ég get útbúið lista og sent þér á morgun
Hann: er.. er eitthvað að?
Anna: nei, af hverju?
Hann: þú ert ekki eins og þú ert venjulega, mér líður eins og ég sé að tala við.. e.k. þjónustu
Anna: hvernig þjónustu?
Hann: ég veit það ekki, vinalínu eða eitthvað, röddin þín er svo róandi og kynþokkafull
Anna: og er eitthvað sem ég get hjálpað þér með?
Hann: hlær
Anna: ég er sennilega bara þreytt
Hann: varstu að koma úr sumarfríi?
Anna: nei, bara illa sofin
Hann: ok
Anna: ég sendi þér skjalið á morgun
Hann: ok, á ég svo ekki að vera í bandi í kjölfarið?
Anna: hljómar vel
Hann: það er rosalega skrítið að tala við þig svona
Anna: já..

Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld, vonandi verður röddin mín hætt að vera róandi og kynþokkafull á morgun. Þetta gengur náttúrlega ekki svona..


| anna | 13:32 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Samantekt
Miðvikudagur, 19. ágúst 2009

Í gær var ég í jafn miklu stuði og ég var í óstuði á mánudaginn. Í morgun vaknaði ég klukkan hálf sjö og fór á fund klukkan átta. Í hádeginu hitti ég mann sem ég er óðum að falla fyrir.

Það lítur út fyrir að ég sé að fara í frí fyrstu vikuna í september - og ég hlakka mikið til.

Á föstudaginn er ég að fara á sushi-kennslukvöld með hressum konum.

Síðasta föstudag setti ég Íslandsmet í gítarspili við varðeld með fullt af Marel fólki - segi meira frá því þegar ég finn myndir og fjöldinn er kominn á hreint.

Ég er að hugsa um að prufa að fara í ræktina á morgnanna í staðinn fyrir að fara á kvöldin. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mér dettur þetta í hug.

Í nótt dreymdi mig skít og rétt í þessu var ég að fá.. bónorð?

"Anna, viltu verða vampýrudrottningin mín? Við getum lifað að eilífu og flögrað um landsbyggðina í leit að mannlegum virkjanakostum og lifað mjög hátt. Mikið af auðmeltanlegum sálum á Íslandi..."

Ég sé fyrir mér massa krýningarathöfn og þriggja vikna veislu. Í hverju á ég að vera?

Þetta á eftir að koma óhugnanlega vel út í símaskránni.

Anna Helgadóttir, vampírudrottning
Hagamel 53

Svo var ég að frétta að 10 þúsund manns ætla að dansa Thriller í Mexíkó á afmælisdaginn minn. Mér finnst það kúl.


| anna | 13:51 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Föstudagur
Föstudagur, 21. ágúst 2009

Ég er ekki búin að vera í neinu bloggstuði þessa dagana. Ég er of upptekin við að hugsa um krakkana, vinnuna, fjárhagsáætlunina út árið og manninn. Ekki í þessari röð.

Mér sýnist ég ætla að lifa af út árið fjárhagslega þó ég verði fram í desember að borga tannlækninum. Í næsta mánuði borga ég síðustu afborgun af LÍN láninu mínu, hallelúja - ég mun halda sérstaklega uppá það.

Ég á afmæli seinna í þessum mánuði. Á afmælisdaginn ætlar að koma hingað maður og grilla, sérstaklega fyrir mig og krakkana. Þó þau séu bara nýbúin að hitta hann líkar þeim báðum mjög vel við hann - eins og mér. Kannski giftist ég honum bara og lifi hamingjusöm til æviloka.

Það er búið að vera gaman í vinnunni undanfarið og ég spái því að það verði bara meira gaman eftir því sem líður á veturinn. Margt að gerast.

Ég fékk hugmynd í vinnunni í dag. Síðasta vor úthlutaði ég krökkunum sitthvorum deginum í viku (fengu að velja hvaða dag) þar sem þau bera ábyrgð á að elda mat fyrir fjölskylduna. Það er ekki vegna þess að ég nenni ekki að elda (eins og Dodda grunaði fyrst), það er vegna þess að ég trúi að það sé hollt og gott fyrir börn að læra hvernig matur er búinn til - auk þess sem þau verða þá ekki ósjálfbjarga í eldhúsinu þegar þau flytja að heiman. Nema mér datt í hug að taka þessa hugmynd aðeins lengra.

Ætla að hugsa það aðeins áður en ég blogga um það.

Sushi í kvöld..


| anna | 17:52 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Vegamyndir
Mánudagur, 24. ágúst 2009

| anna | 12:29 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Eyja til sölu
Mánudagur, 24. ágúst 2009

Frá því ég var lítil stelpa hefur mig dreymt um að eiga mína eigin eyju. Um helgina sá ég eyju til sölu, þetta er reyndar umferðaeyja, en samt. Býður uppá ýmsa möguleika..

Ég hef reyndar ekki efni á að kaupa mér eyju fyrr en ég er allavega búin að klára að borga tannlækninum, en þeir sem hafa áhuga geta hringt í Eignamiðlun og fengið nánari upplýsingar.

IMG_3816-1.png


| anna | 17:36 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Sushi kvöld
Mánudagur, 24. ágúst 2009

Á föstudagskvöldið hitti ég nokkrar frábærar stelpur og við bjuggum til Sushi saman. Þetta gerðum við beint fyrir framan nefið á gæludýri heimilisins, sem leið sennilega ekki vel.

"I feel a great disturbance in the force.. "

IMG_3795.jpg

Við vorum ekkert smá duglegar að framleiða..

IMG_3768.jpg

IMG_3773.jpg

Þetta var snilldar kvöld.

Sushi - before and after:

IMG_3796.jpg


| anna | 22:21 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Vegamyndir II
Mánudagur, 24. ágúst 2009


| anna | 22:41 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Rútína
Þriðjudagur, 25. ágúst 2009

Skólarnir byrjaðir og rútínan mætt. Þó svo ég sé búin að eiga yndislegt sumar þá finnst mér alltaf svolítið gott þegar rútínan kemur á haustin. Það verður skrítið þegar krakkarnir eru fluttir að heiman og þessi rútína sem fylgir skólagöngu barna fer.

Ég og maðurinn sem gerir mig bæði hamingjusama og skíthrædda fórum með frumburðinn í æfingaakstur í gærkvöldi. Mér finnst algjör snilld að maður megi æfa börnin sín í að keyra og mér fannst mjög gott að hafa hann með. Hann kenndi henni að hlusta á vélina þegar hún tekur af stað og með því náði hún þessu um leið - er ennþá að venjast bílnum (beinskiptur - ekki bimminn). Hún var líka látin bakka miskunnarlaust.

Hann er búinn að bjóða okkur í mat og bluray bíó heima hjá honum í vikunni.

Þeim líkar vel við hann, en þegar þau sjá að hann á nintendo wii er óvíst að ég nái þeim heim með mér aftur..


Vá..
Þriðjudagur, 25. ágúst 2009

| anna | 15:17 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Íslandsmet í gítarspili við varðeld!
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009

Marel starfsmenn settu Íslandsmet í gítarspili við varðeld, föstudaginn 15. ágúst, 2009 í Bæ í kjós. Alls spiluðu 53 en miklu fleiri sungu með.

Hér erum við að koma okkur fyrir (augljóslega er ég við endann á rauðu örinni):

Og fleiri myndir eru á flickr..


| anna | 10:49 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Microsoft
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009

Þegar Microsoft klúðrar virðast þeir reyna að gera það á mörgum levelum - í einu. Það er eiginlega orðið trademark Microsoft.

Mér finnst þetta massa kúl auglýsing fyrir Apple. Tag-lænið virkar meira að segja.

"empower your people with the IT tools they need"

mcbook.png

Þetta er náttúrlega rugl.


| anna | 12:07 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Þekkt stjarna látin af völdum svínaflensunnar....
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009

| anna | 14:34 | permalink | comments (1) | send to facebook |
At gunpoint
Föstudagur, 28. ágúst 2009

Mikið er ég fegin að það er 28. ágúst en ekki 29. sem fær Icesave stimpilinn.

Mér þykir vænt um daginn sem ég fæddist. Það er góður dagur. Á morgun mun hann byrja með því að ég verð kysst og mér óskað til hamingju með afmælið. Því næst förum við útúr bænum í smá bíltúr. Á eftir er grill og svo massa póker tournament.

38 ára. Með fiðring í maganum.

Á þriðjudaginn er ég að fara útúr bænum. Kem aftur eftir sex daga.


| anna | 17:19 | permalink | comments (0) | send to facebook |
38 ára
Mánudagur, 31. ágúst 2009

IMG_6123.jpg


| anna | 18:56 | permalink | comments (3) | send to facebook |

ravings í ágúst 2009
monthly archive

links
blogs
links - web