www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Værð
Miðvikudagur, 15. júlí 2009

Ég sit hér með sólskinsbros á vör, nýkomin úr heitu baði, búin að teygja mig alla og er að drekka ískalt vatn.

Myndin efst í vinstra horninu á síðunni er búin að fara svo massa mikið í taugarnar á mér undanfarið að ég tók mynd af mér áðan og skipti gömlu út. Ef nýja myndin kemur ekki ýttu þá á F5 á lyklaborðinu. Þá sérðu hvernig Anna er í dag.

Ég spurði Chris hvað hann myndi gera ef ég væri mjög erfið og hann sagðist myndi kyssa mig þangað til ég hætti. Nú þarf ég hjálp. Hvernig get ég verið erfið? Komið með tillögur, ég þarf að vera massa erfið í þessari ferð.

Annars er komin undarleg værð yfir mig. Ég er ekki stressuð yfir að hann sé að koma lengur. Hann er að vinna eins og geðsjúklingur þessa dagana til að þurfa ekki að pæla í vinnunni þegar hann kemur.

Það er búið að vera rólegt í vinnunni hjá mér en það er bara lognið á undan storminum. As we speak er verið að græja fyrir mig dæmi sem ég þarf að koma upp í ágúst, og það verður yfirlega. Þegar það er alveg búið - sem verður sennilega ekki fyrr en eftir áramót - verður Marel vefurinn orðinn töluvert nálægt því sem ég sá fyrir mér upprunalega.

Það verður kampavínsdagur.


| anna | 0:11 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web