www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Vantar hjálp
Sunnudagur, 05. júlí 2009

Hann er að spyrja mig um hvort það sé eitthvað sem mig langi að gera sem ég hef aldrei gert. Hestaferð, svifdreki, rafting, sigla, leigja mótorhjól, hvað sem er.

Mig hefur alltaf langað að prufa að fara á svona jet ski. Hvar er hægt að gera það? sjó-hjól eða hvað sem það heitir. Hvað heitir það? Vatnsleði?

Vilji þið senda mér hugmyndir og upplýsingar ef þið hafið prófað eitthvað af þessu. Mig langar að prufa rafting líka, hefur alltaf langað að gera það. Getur einhver bent mér á hvar er hægt að gera skemmtilega hluti hérna og jafnvel póstað linkum á nánari upplýsingar?

Mig langar líka svolítið að fara að veiða. Hvar er gott að fara að veiða?


| anna | 15:20 |
comments

Alan fór einu sinni í river rafting í Nepal. Það var eftirminnilegt. Hann prófaði seinna að sigla niður Hvítá. Það var ekki eins spennandi.

Prófaðu að stinga upp á riverrafting í Nepal.

Til vara að ganga á Hvannadalshnjúk. Það klikkar ekki, þar hittust hr. og frú Hudson sællar minningar, fylgdust að niður og saman síðan.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 5.07.2009 | 18:24:08 | [+] |

Sjóþota heitir það, þetta farartæki. Það er örugglega stuð.

Nr. 2 | posted by: Tumi | 5.07.2009 | 22:08:44 | [+] |

kiktu a þetta

http://riverrafting.is/

Nr. 3 | posted by: oskar | 5.07.2009 | 22:30:35 | [+] |

kiktu a þetta

http://riverrafting.is/

Nr. 4 | posted by: oskar | 5.07.2009 | 22:30:44 | [+] |

úps sorry, átti að vera þessi linkur (held ég)

http://www.arcticrafting.is/Iceland/Forsida/

Nr. 5 | posted by: oskar | 5.07.2009 | 22:33:00 | [+] |

Ævintýraferðir í Skagafirði: http://www.rafting.is/icelandic/index.php

Mæli með Vestari-Jökulsá, hef farið tvisvar. Á eftir Austari-Jökulsá sem mun vera all svakaleg.

Nr. 6 | posted by: Guðrún | 6.07.2009 | 13:20:19 | [+] |

Takk fyrir þetta, mér líst vel á Vestari-Jökulsá, við erum ennþá að ákveða hvað við ætlum að gera. Að plana á fullu!

Alan. Þið eigið fallega sögu um hvernig þið hittust smile

Nr. 7 | posted by: anna | 6.07.2009 | 15:59:28 | [+] |

Austari-Jökulsá, sbr. tengil frá Guðrúnu, er upplifun út af fyrir sig, ef þú hefur á annað borð tíma til að renna norður.

Nr. 8 | posted by: Outlaw | 6.07.2009 | 19:29:24 | [+] |

Austari er fyrir advanced hópa, ég er algjör byrjandi í öllu svona! Á ég að þora í hitt??

Nr. 9 | posted by: anna | 6.07.2009 | 20:00:54 | [+] |

Ég held að listin sé að halda jafnvægi í bátnum og fylgja svo leiðbeiningum þegar einhver dettur út í eða þegar bátnum hvolfir - eða er hvolft öllu heldur. Við fórum ca. 8 saman, tveir höfðu prófað þetta áður, öllum fannst þetta geggjuð upplifun. Ef þú ert að íhuga rafting á annað borð hvet ég þig til að hringja og spjalla við Ævintýraferðir, ég fékk mjög góðar upplýsingar sem gerði ákvörðunina auðvelda og það var ekkert stress í hópnum.

Nr. 10 | posted by: Outlaw | 7.07.2009 | 15:15:10 | [+] |

kiktu a þetta - aedisleg:
pirate
http://www.youtube.com/watch?v=k7vNzdGxl8c

Nr. 11 | posted by: Chris | 7.07.2009 | 18:04:22 | [+] |

Chris this looks really, really cold!! chococat

We are gonna have so much fun.

Outlaw: heldurðu að það sé óhætt fyrir manneskju sem er klárlega ekki ennþá með fullan líkamsstyrk að fara í svona ferð?

Nr. 12 | posted by: anna | 7.07.2009 | 18:29:43 | [+] |

Ef þetta sem áreynsla getur haft áhrif á heilsu er sú Vestari sjálfsagt betri (þú færð mig til að hljóma eins og lækni eða sálfræðing, sem sagt alvarlega wink ). Annars held ég að það sé fólk í allskonar formi sem fari austanmegin. Hópurinn sem ég fór með var jafn fjölbreyttur og castið í Four Weddings and a.... Það sem þreytti okkur mest var þegar við duttum út í og fórum vel í kaf og þurftum að taka á til að rétta okkur af í straumnum. Engin ástæða til að hætta heilsu, en ef þú seinna hefur tækifæri til að fara mæli ég eindregið með því, í góðum hópi því það er gaman að sjá hvað þetta þjappar fólki félagslega saman.

Nr. 13 | posted by: Outlaw | 9.07.2009 | 5:56:19 | [+] |

Þetta er ekkert spurning um advanced og ekki advanced, bara að halda sér.

Nr. 14 | posted by: AlanHudson | 12.07.2009 | 1:54:28 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web