Fimmtudagur, 09. júlí 2009
Var að koma heim úr Bollywood partíinu, þar sem við ræddum um heima og geima, Bruno og hvort dýr hafi sjálf - þ.e önnur dýr en mannskepnan.
Þegar ég kom heim náði ég í hattinn sem ég fann hjá mömmu og setti hann á hausinn á mér. Stuttu síðar kom frumburðurinn heim úr vinnunni og þegar hún sá mig sagði hún: "Mamma, þessi hattur screams "Sue Ellen".
Það var þá sem ég áttaði mig. Um helgina þegar ég fór út var ég eins og Sue Ellen líka, svakalega mikið máluð um augun og hefði ég átt axlapúða hefði ég sett þá innanundir jakkann.
Ég verð að hætta að horfa á Dallas. Þetta er orðið hrikalegt ástand.


En mér finnst þessi hattur klikkað flottur.
Takk fyrir skemmtilegt kvöld stelpur! Hlakka til næst!