Þriðjudagur, 07. júlí 2009
Í kvöld fékk ég póst frá honum þar sem hluti af póstinum er á íslensku og ég fór að hlæja. Mér finnst þetta svo flippað að einhver myndi nenna að setja sig inní jafn remote tungumál og íslensku. Ég veit það ekki. Meina, Klingon er sennilega útbreiddara tungumál en íslenska.
Hann hefur aldrei farið í frí til sama landsins tvisvar. Hann hefur ferðast um allar heimsálfur og til ótrúlega margra landa, en Ísland er fyrsta landið sem hann ætlar að heimsækja tvisvar og við vitum bæði að það er ekki vegna landslagsins. Það er útaf konunni sem gekk óvænt upp að honum þar sem hann sat að drekka kaffi í rólegheitunum og spurði hvort hann væri nokkuð að bíða eftir sér. Lét hann svo bíða í tíu daga og fjögur ár.
Engin pressa.
Við erum búin að ákveða að fara á Vestfirði, meðal annars.
Verðum í pínulitlu tveggja manna tjaldi. Mjög nálægt. Hvoru öðru.
Ohh þetta verður svo gaman!