www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jeeeeha!
Sunnudagur, 05. júlí 2009

Ég var í hörkupartýi í kvöld og það var massa gaman. Og ég hlakka ekkert smá til næst!

Á tímabili niðrí bæ helltist yfir mig þörf fyrir að fara ekki heim til mín. Mig langaði að fara annað. En ég er orðin svo stór stelpa að ég veit að stundum borgar sig ekki að gera það sem mann langar að gera, einfaldlega vegna þess að það sem hjartað vill er oft mjög heimskulegt.

En vá hvað mig langaði.

Annars er gaman að segja frá því að mamma sagði mér í gær, í óspurðum fréttum, að maðurinn sem er að koma til landsins sé aumingi og lúser og ég eigi ekki að koma nálægt honum. Ég fór að hlæja. Þetta er mamma búin að segja um alla menn sem ég hef verið með í sigtinu (og hún hefur vitað um) síðan ég var unglingur - nema um fyrrverandi eiginmann minn.

Mamma á yndislegan mann sem tekur alltaf utanum mig þegar ég kem að heimsækja þau og knúsar mig, og ég hef alltaf jafn gott af því. Í þau skipti sem ég hef sagt þeim að ég sé að hitta einhvern hefur hann alltaf haldið því fram að nú væri ég búin að hitta manninn sem væri sá rétti - svo ég spurði hann hvernig honum litist á þennan þýska. Hann var fljótur að svara "þetta er sennilega aumingi". Ég rak upp stór augu "ha?", ég átti ekki von á þessu svari frá honum.

"Ja, ég er búin að hafa rangt fyrir mér með hina og ég vil að þú farir að hitta mann sem reynist þér vel. Ég er að vona að ég hafi alltaf rangt fyrir mér."

Hann er ekkert smá sætur.


| anna | 3:27 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web