Ég átti ekkert annað handa honum til að vera í, allir bolirnir hans lyktuðu eins og fiskur/sjór og við vorum að þvo í morgun.
Give the man a break, will ya'.
(Ég þorði ekki að fara með rauða Glitnis poncho-ið með mér í ferðina. Óttaðist að vera grýtt hehehe)
Annars lítur út fyrir að borðvélin mín sé hrunin sem þýðir að allar myndirnar sem ég tók í ferðinni eru farnar - ásamt mikið af öðru dóti. Ég er frekar leið yfir þessu þar sem ég tók margar helv flottar myndir þó hann hafi auðvitað líka tekið flottar myndir sem ég get fengið afrit af. Er kicking myself fyrir að hafa ekki verið búin að skrifa þetta á disk fyrir hann.
Ég er að reyna að finna út hvernig ég get tekið Pollyönnu á þetta mál. Öll hjálp vel þegin.
Annars erum við bæði dauðþreytt, hann er steinsofandi í sófanum núna.
Best ég fari núna og taki allavega mynd af því..
Nr. 3 | posted by: anna |
26.07.2009 | 18:31:33 | [+] |
Hefur þér dottið í hug að prófa recovery genius á diskinn?