Fimmtudagur, 02. júlí 2009

Sonur minn er búinn að vera á leiklistarnámskeiði í Mosfellsbæ í júní og í dag frumsýndu þau leikritið Galdrakarlinn í Oz. Mikið hrikalega var þetta gaman!
Verð að láta eina mynd af stjörnu sýningarinnar fylgja með. Doddi heldur að hún heiti Erna, en hún stóð sig frábærlega vel, og þau öll. Þakið ætlaði að rifna af húsinu þegar sýningin var búin og lófaklappið dundi lengi.

Ég tók svo mikið af myndum, en það mátti ekki nota flass svo þær eru skemmtilega hreyfðar. Hér er ein sem mér finnst frábær af Dodda og Hirti frænda hans. Þeir eru sjálfkrafa miðpunkturinn á myndinni þar sem allir hinir eru hreyfðir.

Og þegar þessu var lokið fórum við á hamborgarabúlluna með sveittan og svangan leikara eftir streð dagsins.

Þetta var alveg æðisleg upplifun og ég mæli með þessu leiklistanámskeiði fyrir krakka sem vilja taka þátt í svona leiksýningu. Það eru tvær hressar stelpur sem halda þessi námskeið, þetta er í Mosó og þær sögðu mér að það væri hægt að finna allar upplýsingar á www.leikmos.is, en síðan virðist vera niðri akkúrat núna. Vonandi kemur hún fljótt upp.