www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Deus ex machina
Fimmtudagur, 16. júlí 2009

Ég var að fatta eitt. EF við föllum fyrir hvoru öðru eins og flugur og lifum hamingjusöm til æviloka verður þetta flottasta deus ex machina lausn á mínum kærastamálum sem hægt var að láta sér detta í hug.

Allt í einu kemur bara einhver maður til landsins sem enginn vissi af og púff.. happily ever after á línuna.

Þetta er á Dallas mælikvarða - nema svo fæ ég extra bónus stig vegna þess að þessi maður lítur skuggalega mikið út eins og... drumroll.. Ken !

Skemmtileg tilviljun.

Veit ekki á hvaða lyfjum ég þyrfti eiginlega að vera á til að skálda svona lagað.

Ég man ekki til þess að ég hafi nokkurtíma keypt mér kjól sérstaklega fyrir stefnumót - en ég man ekki til þess að karlmaður hafi flogið sérstaklega til Íslands til að fara á stefnumót með mér heldur, svo þetta sleppur. Þegar Stephen kom, þá kom hann sem vinur. Það er þessi maður ekki að gera.

Fór í Smáralind og þegar ég var búin að skoða í næstum allar búðir þarna fór ég í fallegustu kjólabúðina á Íslandi: Coast. Skil ekki hvað ég var að fara í hinar búðirnar, kjólarnir sem ég vil eru þarna og ég veit það alveg. Yndisleg afgreiðslukonan sem aðstoðaði mig. Ég fór út með kjól sem er svo fallegur og eins og sérsaumaður utaná mig. Skaðræðislega dökk bleikur. Hann er eiginlega overkill flottur á mér - en þetta eru extreme aðstæður svo það má alveg. (engar myndir, hann má ekki sjá mig í honum fyrirfram)

Keypti líka topp fyrir stefnumótið okkar á morgun. Fyrst fær hann að sjá mig eins og ég er alla daga þegar ég fer að sækja hann útá flugvöll, svo verð ég aðeins flottari um kvöldið á stefnumótinu, svo verð ég eins og lúði á fjöllum í fimm daga, svo verð ég eins og drottning í flotta kjólnum þegar við komum til baka.

Sounds like a plan to me.

Ég er samt að byrja að verða smá stressuð. En svo rifja ég upp það sem góð vinkona mín kenndi mér í vikunni: ekki hugsa Anna, bara njóta.

Góð regla.

Og.. og.. og ef ég verð massa geðveikislega ástfangin af honum og hann fer og lætur aldrei í sér heyra aftur, þá er ég búin að læna upp öxlum til að gráta á. Var að recrúta tvær í kvöld. Stelpurnar fóru að skellihlæja en ég meina, eins og geitin sagði "you've got to be prepared" - og líka samt.. ekki hugsa, bara njóta.

Ekki hugsa Anna, bara njóta. Ekki hugsa. Ekki hugsa.

---
> you're less than a day away Chris.

yes, tomorrow at this time. we will be sitting opposite each other and laugh about the past 4 years - still on the date!

> have a good flight tomorrow and land safely.

thank you.

> a kiss and a hug,

i will come back to this offer.

sleep well.

tomorrow...


| anna | 21:17 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web