Laugardagur, 18. júlí 2009
Við fórum á Laugarvatn til mömmu og Begga til að fá upplýsingar um Vestfirði, erum komin með röff plan og förum útúr bænum í fyrramálið.
Mamma vissi náttúrlega ekki að við græjuðum pönnukökur í morgunmat svo hún var búin að búa til pönnukökur líka. Chris heldur sennilega að þetta sé þjóðarrétturinn. Í kvöld er afslöppun, ég er að elda traditional hrygg í matinn með öllu tilheyrandi.
Ég er svo spennt að fara í þessa ferð. Og ég held að ég sé í góðum höndum. Hann og mamma voru að tala um hvað við værum að bera mikið og Chris sagði að ég eigi eftir að bera mjög lítið, fötin mín, svefnpokann og búið. Hann ætlar að bera rest - sem er allur maturinn, vatnið, dýnurnar, tjaldið, eldsneytið, dótið sem við notum til að elda með - allt. Og hann sagði við mömmu að hann myndi aldrei láta mig bera meira en tíu kg max. Það gleður mig. Á mjög frumstæðu leveli.
Mamma að búa til pönnukökur:

Voffa líkaði mjög vel við Chris (þetta er samt ég að klappa honum á myndinni), held að honum hafi langað með okkur:

Mamma að útskýra sögu bústaðsins fyrir Chris:

Chris tók þessa á ferð útum gluggann á bílnum:

Ég reikna ekki með að skrifa meira hér fyrr en ég kem til baka næstu helgi.
Er með fingers crossed að við fáum gott veður - og komum heil á húfi aftur heim..