www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Búið í bili
Miðvikudagur, 01. júlí 2009

Saumatakann gekk svo vel. Þetta er verulega góður tannlæknir sem ég er hjá.

Þau voru mjög ánægð að sjá hvað bólgann er búinn að hjaðna mikið og fannst það eiginlega ótrúlegt miðað við hvernig aðgerð ég var í. Sögðu að ég mætti búast við að bólgan væri alveg farin um helgina. Skurðirnir líta mjög vel út og ég má hefja normal líf á nýju og gera allt sem ég vil gera. Fer ekki aftur til þeirra fyrr en 28. ágúst og þá bara í myndatöku til að sjá hvernig beinið er að gróa vegna þess að það grær svo hægt.

Ég er svo fegin og þakklát.

Tveir dagar í viðbót og þá er ég búin á pensillíninu líka.


| anna | 12:47 |
comments

gott að heyra, þetta er nú meira brasið á þér melodramatic

en nú fer þetta allt að koma!

Nr. 1 | posted by: baun | 1.07.2009 | 18:48:00 | [+] |

no shit, já nú fer þetta að koma. happy

Nr. 2 | posted by: anna | 1.07.2009 | 20:52:25 | [+] |

Frábært að þetta gangi vel og þessu veseni fari að ljúka.

Ég er spenntur að sjá hvernig NORMAL líf þitt muni skila sér út á bloggið. Mér hefur sýnst það vera frekar ab hingað til, en kannski er ég bara að hugsa út frá einhverjum flötum stöðlum sem eiga ekki við týpu ein og þig.

Gangi þér vel í baráttunni Anna!

Nr. 3 | posted by: enginn | 2.07.2009 | 8:45:04 | [+] |

Hvað er svona abnormal við líf mitt? Viltu segja mér það?

Nr. 4 | posted by: anna | 2.07.2009 | 9:05:48 | [+] |

Normal líf, hver nennir að lesa um það ?

Nr. 5 | posted by: Hugz | 2.07.2009 | 9:48:15 | [+] |

Þetta var hrós Anna!

Normal er meðalmennska. Normal manneskja hverfur í fjöldann. Normal gerir eins og hinir. Normal týpan lifir lífinu eins og hún gerði í skólanum þar sem hún vonaðist eftir að verða ekki tekinn upp í tíma.

Anna aftur á móti er sjálfstæð kona með skoðanir sem og lífstíl sem er hennar eigin. Hún þorir viðra líf sitt á blogginu jafnvel tilfinningar og væntingar sem flestir myndu jafnvel fela.

Anna hefur áhuga á bílum og horfir á Terminator back-to-back.

Það er þetta frávik frá NORMAL sem gerir blogg þitt svona skemmtilegt. Ég er viss um að það eru fleiri en ég sem öfunda þig af þínu lífi! Þú virðist lifa því.

Ég óttaðist smá stund í morgun að ef þú hæfir normal líf myndi Desperate houswives og Gray's Anatomy taka við á blogginu.
En, þá var ég auðvitað með meðalkúrfuna í huga.

Nr. 6 | posted by: enginn | 2.07.2009 | 10:06:33 | [+] |

Takk, ég tók þessu nú ekki sem dissi smile

Þegar Stephen var farinn heim sagði hann við mig á msn að þegar hann kom hingað og hitti mig in person fannst honum ég vera "grounded" og ég þurfti að gúgla þetta orð til að skilja hvað hann átti við. En mér þótti vænt um að hann hefði séð þessa eiginleika í mér og eiginlega meira vænt um hvað honum þótti mikið í þá varið. Það er eins og þeir karlmenn sem ég hef verið með hingað til hafi ekki kunnað að meta þetta.

Í grunninn lifi ég mjög venjulegu lífi og hef frekar down to earth drauma. Ég fæ samt speglun frá fólkinu sem ég umgengst sem segir mér að ég sé ekki venjuleg. Ég hef satt að segja aldrei skilið það.

En miðað við samskipti mín og verkfræðingsins frá þýskalandi get ég eiginlega lofað þér áhugaverðu bloggi í endaðan júlí. Eiginlega sama hvað gerist.

Nr. 7 | posted by: anna | 2.07.2009 | 11:23:50 | [+] |

Til hamingju Anna.

Nr. 8 | posted by: Kristín | 2.07.2009 | 21:56:36 | [+] |

Takk Kristín smile

Var að sporðrenna síðustu pensillíntöflunum.

Nr. 9 | posted by: anna | 3.07.2009 | 7:50:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web