Mánudagur, 29. júní 2009
Ókey ég er ekki frelsuð, það var stór og feit LYGI og fyrir hana og allt hitt hryllilega unspeakable stuff sem ég hef gert um ævina mun ég fara til helvítis, þetta er löngu vitað mál og ég mun takast á við það þegar þar að kemur - en - ég tók samt saman nokkur atriði sem ég er þakkát fyrir, til upprifjunar, það er nefnilega ekkert svo lítið.
Ég á frábæra krakka sem ég er verulega stolt af sem veita mér félagsskap, ást, virðingu, hlýju og nánd.
Ég er í vinnu sem mér finnst skemmtileg og krefjandi.
Ég skulda engum banka neitt.
Ég skulda ekkert í bílnum mínum.
Ég bý á landi þar sem ég get fengið lækningu og lyf ef ég verð veik og bý almennt við mjög góða heilsu.
Ég hef heilbrigð lífsgildi og lifi nokkuð heilbrigðu lífi.
Ég á fáa en góða vini og fólk að sem styður mig þegar ég þarf virkilega á því að halda.
Ég er að fara að ferðast um landið með yndislegum manni í heila tíu daga í júlí.
Ég komst að því um daginn að ég á mökk af peningum í einhverjum starfsmenntunarsjóði hjá VR, sem ég ætla að nota í eitthvað skemmtilegt nám í vetur eða vor með vinnu.
Þarf að ræða þetta eitthvað?
Segið svo að það sé ekki hjónasvipur með okkur.