www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Rear ended
Föstudagur, 19. júní 2009

And not in a good way.

Þrír frakkar í hádeginu. Plokkfiskurinn þar er fáránlega góður. Við ákváðum að fara aftur þangað.

Á leiðinni heim var keyrt aftaná bílinn minn. Ég var á beygjuljósunum að fara inná Hofsvallagötu af Hringbraut, ökumaðurinn fyrir framan áttaði sig ekki á því að það var komið grænt og ég var að setja höndina á flautuna þegar bamm!

Mér brá svo að ég er ennþá í sjokki.

Það eru góðar líkur á því að ég fari aldrei í Þingholtin aftur. Allavega ekki á bíl. Ég var líka að koma þaðan þegar það var keyrt aftaná bílinn í vetur.

Sem betur fer var þetta indæll maður, honum var jafn brugðið og mér.

Skrítið. Þó ég elski bílinn minn og allt það þá fyrirgaf ég þessum manni á 2 mín. Enda var þetta ekki planað og augljóst að honum var mikið niðri fyrir. Ég er tryggð og ég er í rétti. Ég held að ég hafi ekki fengið neinn hnykk á mig, ekki eins og síðast. Ég er ennþá með eymsli í mjóbakinu eftir þann árekstur.

Kannski hnykkti þetta bara mjóbakinu í lag.

Mér fyndist það fair.


| anna | 13:40 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web