www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
It's alive!
Mánudagur, 29. júní 2009

Þegar frumburðurinn kom heim í dag sagði ég henni frá þessum válegu sjónvarpstíðindum. Hún gekk að sjónvarpinu, kveikti á því og það hrökk í gang.

ÞAÐ ER Í LAGI MEÐ SJÓNVARPIÐ! Nema liturinn í hliðunum er orðinn grænn. Okkur finnst það bara sætt - en, Linda, ef tilboðið stendur þá þigg ég það. Þetta sjónvarp sem ég er með er sennilega á síðustu metrunum.

Kraftaverkin gerast. Ég reyndi ítrekað að kveikja á sjónvarpinu í gær og það var steindautt. Sennilega var bara ekki hollt fyrir mig að horfa á Denny Crane í gærkvöldi. Þetta hafa englarnir vitað og vakað yfir mér.

Saumarnir verða teknir á miðvikudaginn. Það hafa verið teknir saumar úr mér áður á þessum stað og það var langt frá því að vera þægilegt. Það er ca þrisvar sinnum meira af saumum uppí mér núna og þar sem bólgan er búin að hjaðna það mikið að ég get skoðað þetta betur sé ég að hann hefur skorið inná fjögurra cm svæði, sennnilega til að taka bein af heilbrigðum svæðum til að græða í kinnholið. Ég hlakka samt til þegar saumarnir verða teknir. Það er eitt skref í áttina og bráðum verður þetta alveg búið.

Það sem ég hef lært á þessum veikindum mínum er mjög verðmætt. Ég lærði hvað heilsan skiptir rosalega miklu máli og það varð til þess að ég hætti að reykja endanlega. Var alltaf að falla öðru hvoru. Fór líka að hugsa um hvað ég læt ofaní mig. Er ekki búin að drekka kók í smá tíma núna. Dugleg. Þetta með áramótin stendur.

Fyrrverandi tengdamamma mín kom að kíkja á mig áðan, skoðaði uppí skoltinn á mér og þar sem hún er hjúkka og vann við að sinna sjúklingum eftir kjálkauppskurði hefur hún töluverða reynslu. Ég er búin að vera að fá skrítna verki í höfuðið í dag og í gær og er búin að vera rosalega þreytt (veit núna af hverju, kom í ljós seinna um kvöldið) og bað hana þess vegna að kíkja á mig. Henni finnst þetta líta alveg lygilega vel út miðað við hvað er stutt síðan ég fór í þessa aðgerð. Ég er ekkert smá fegin, fékk massa kvíðakast í gærkvöldi þegar ég fór að spá: get ég farið uppá fjöll eftir þrjár vikur? Og more important: get ég kysst einhvern eftir þrjár vikur! Vá hvað væri ömurlegt ef hann kemur, ef við yrðum brjálæðislega hrifin af hvoru öðru, og ég gæti svo ekki kysst hann almennilega! Því ég gæti það ekki í dag.

Þetta væri catastrophic scenario.

Ég spurði hana að þessu og hún fór að hlæja og sagði að miðað við hvernig þetta lítur út þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur, það eina sem ég þarf að passa uppá er kuldi. Hún faðmaði mig áður en hún fór og sagði að það væri svo gott að sjá að ég væri á svona góðum batavegi og liti svona vel út. Mér þykir svo vænt um þessa konu.

Stuttu eftir að hún var farin fékk ég póst frá Chris. Ég var búin að segja honum að ég liti út eins og guðfaðirinn eftir skurðaðgerðina og í þessum pósti spurði hann hvort hann muni hitta mig sem guðföður þegar hann kemur, eða hvort ég verð orðin ég aftur. Og hann hlakkar jafn mikið til og mér. Og mér finnst það æðislegt.

Fyrst sjónvarpið er ennþá í stuði komu vinkonur frumburðarins í dag og við erum búin að halda massa terminator maraþon hérna seinnipart dags og allt kvöld. Ég sofnaði reyndar annað slagið en þetta er ekkert sem ég hef ekki séð áður. Mynd eitt er auðvitað algjör klassík, en jesús kristur hvað hún er mikið barn síns tíma hvað brellur og tónlist varðar. Mynd tvö er svo töff. Þegar maður sér Lindu Hamilton þá svoleiðis drep langar mann að fara í ræktina, hún er styggðarlega flott í þessari mynd.

Áramótin baby.


| anna | 23:58 |
comments

Tilbodid stendur, ekki smurning. Verd i bandi tegar eg kem heim.

Nr. 1 | posted by: lindablinda | 30.06.2009 | 7:41:16 | [+] |

Brrrrrilliant!! Takk! smile

Nr. 2 | posted by: anna | 30.06.2009 | 9:55:20 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web