Fimmtudagur, 11. júní 2009
Það er alltaf solid þegar heimilislæknirinn hringir í mann og byrjar samtalið á að segja "ó mæ god!".
Sérstaklega þegar þetta gerist eftir að hann bað mig að koma í aðra prufu því hin varð ónýt vegna "tæknilegra galla" og þegar ég kom í prufuna og sagði hjúkkunni það, setti hún upp skrítin svip og sagðist aldrei, á öllum starfsferlinum, hafa heyrt um að prufa skemmist vegna tæknilegs galla.
Hún er búin að vera þarna frá landnámi.
Paranojan þrífst vel þessa dagana, hefði mælst off the charts ef hann hefði verið að skoða þá stöðu.
Hann fór hinsvegar að skellihlæja þegar ég var búin að segja "kræst, hvaða hryllingur er nú?"
Þetta var ekkert - enda þekki ég hann nógu vel til að vita að hann hefði ekki byrjað samtalið á "ó mæ god" ef þetta hefði verið eitthvað.
Ung og hraust manneskja eins og þú..