Fimmtudagur, 25. júní 2009
Í dag sendi ég frumburðinn útí Melabúð að kaupa fyrir mig barnamat svo ég myndi ekki deyja úr hungri. Frestaði líka Jónsmessugöngu og sendiráðspartíi, sem ég veit að hefði verið helv skemmtilegt. Ekki útaf fólkinu í sendiráðinu, heldur útaf fólkinu sem ég ætlaði með í partíið. Sama gildir um Jónsmessugönguna. Það verður reyndar fullt af læknum í þessari Jónsmessugöngu, en mér finnst overkill að mæta á börum og ætlast til að einhver beri mig.
Ég er mest pissed yfir því að ég megi ekki hreyfa mig á meðan ég er að skríða saman, ég sef svakalega mikið svo það er greinilegt að öll orka mín fer í að laga þetta. Er líka á svo svakalega sterkum lyfjum. Ég lít út eins og the godfather, hægra megin. Er búin að jafna mig á þessu massa niðurbroti en hlakka ekki til að fara í saumatökuna. Veit ekki hvort það verði hægt að fá mig til að setjast í tannlæknastól ever again. Kannski ef Jude Law biður mig fallega. Nah, ég myndi sennilega bara sparka í hann.
Það er rugl sárt að hlæja og ég er að komast að því að sennilega geri ég of mikið af því. Spurði börnin áðan hvort ég væri alltaf hlæjandi og þau staðfestu það. Ég hló svo mikið þegar við vorum að borða áðan að ég óttaðist að ég myndi pop a stitch. Ég stalst nefnilega til að tyggja kjöt sem Doddi hélt að væri kjúklingur eða önd (þetta var lamb) og þau veltu fyrir sér hvert þau ættu að hringja að reporta þetta hryllilega violation:
Yes, good evening. I would like to report some unauthorized chewing. Of meat. It is not clear what kind of meat it is, but we have narrowed it down to either chicken, duck, lamb or some sort of alien - in which case it was found on the balcony and was kicked to death by a very, very sick woman..