Fimmtudagur, 18. júní 2009
Krakkarnir voru að poppa í kvöld. Ég á ekki örbylgjuofn og hef aldrei séð þörf á því, ég á sérstakan popp pott sem ég nota til að búa til poppkorn og það er betra en örbylgjupoppið.
Stuttu eftir að krakkarnir fóru að poppa heyrði ég Dodda segja
"AAAAAAA IT'S COMING RIGHT FOR US!"
Það var engin lygi.

Á eftir björguðum við þessu poppi frá útrýmingarhættu með því að borða það.
Ef þú skilur ekkert í þessari færslu, þá mæli ég með þessum South Park þætti, sem er einn af mínum uppáhalds. Ned er t.d. ástæðan fyrir því að ég hætti endanlega að reykja.
Þessi þáttur er klassík.